Langvinn hernaðarátök í Miðausturlöndum gætu haft víðtækar afleiðingar fyrir Evrópu. Forsætisráðherra Ungverjalands varar við því að mögulegt stríð í Íran geti hrundið af stað nýrri og enn stærri fólksflutningsbylgju til Evrópusambandsins með sambærilegum áhrifum og flóttamannakreppan árið 2015.
Viktor Orbán sagði í myndbandi á samfélagsmiðlum að þróunin í Miðausturlöndum gæti fljótt haft áhrif á Evrópu. Hann benti sérstaklega á stærð og stöðu Íran, sem hefur meira en 90 milljónir íbúa og sagði að langvarandi hernaðarástand gæti neytt milljónir manna til að flýja heimkynni sín.
Að hans sögn gæti slíkt gerst ef loftárásir eyðilegðu innviði og skortur yrði á atvinnu og grunnþjónustu eins og menntun, heilbrigðisþjónustu, mat og vatni sem myndi neyða fólk til að yfirgefa landið. Þeir sem leggja á flótta myndu fyrst leita til nágrannaríkjanna og þaðan áfram í átt til Evrópu. Orbán sagði:
„Það er líka stríð í gangi í Miðausturlöndum núna. Enginn veit hvaða innflytjendavandamál langvarandi hernaðarátök munu valda. Íran er land með 90 milljónir íbúa. Ef þeir leggja af stað þaðan er Tyrkland næst og þeir eru þegar komnir á Balkanskaga og hér við girðinguna hjá okkur.“
Milljónir gætu flúið stríðið og leitað til Evrópu
Á síðustu áratugum hafa hernaðarátök í Miðausturlöndum og Norður-Afríku haft djúpstæð áhrif á íbúa svæðisins. Stríðin í Irak og Afghanistan, aðgerðir NATO í Líbíu og borgarastyrjöldin í Sýrlandi leiddu til þess að milljónir manna leituðu til Evrópu.
Margir þeirra sem komu til Evrópu hafa sest þar að til frambúðar og snúa ekki aftur til heimalanda sinna. Evrópsk samfélög hafa á sama tíma þurft að takast á við aukið álag á velferðarkerfi og stjórnsýslu, auk þess sem fjöldi landa hefur glímt við húsnæðisskort og samfélagsbreytingar vegna mikillar aukningar innflytjenda.
Eftir innrás Rússa í Ukraínu árið 2022 tók ESB á móti milljónum flóttamanna frá austurhluta Evrópu. Núna óttast Orbán að áframhaldandi stríð í Íran, sem þegar hefur haft áhrif á nágrannaríkin vegna viðbragða Írans gegn Israel og Bandaríkjunum geti leitt til nýrrar stórfelldrar flóttamannabylgju til Evrópu.
Orkumál einnig áhyggjuefni
Orbán benti einnig á að átökin gætu haft áhrif á orkumarkaði í Evrópu. Samkvæmt honum hafa sendingar á fljótandi jarðgasi frá Qatar stöðvast, sem geti leitt til hækkandi orkuverðs. Forsætisráðherrann segir að Evrópa þurfi að fara varlega í stöðunni sem núna blasir við. Hann sagði:
„Við verðum að vera skynsöm. Þetta er ekki tími til að taka áhættu.“
Ef átökin í Miðausturlöndum halda áfram að breiðast út gæti það því ekki aðeins haft áhrif á stöðugleika svæðisins sjálfs, heldur einnig á orkuöryggi og fólksflutninga í Evrópu á komandi árum.
