Ef Jesús talaði á Alþingi í dag – yrði hann kærður fyrir hatursorðræðu?

Sigmundur Ernir Rúnarsson í haturskasti á Alþingi gegn Jesús. (Mynd © GG).

Eitthvað virðast Samfylkingarmenn vera orðnir málefnalausir fyrst þeir þyrla upp þessu hatri gagnvart talsmönnum kaþólsku kirkjunnar á Íslandi. Ekki má lengur trúa á Jesús Krist, Guð skapara himins og jarðar né heilagan anda en guð skapaði mann og konu og sagði þeim að fylla jörðina sem og varð.

Sigmundur Ernir Rúnarsson þingmaður vantar eitthvað og einhvern til að sparka í og hvað liggur þá betur við höggi en einmitt kaþólska kirkjan á Íslandi og talsmaður hennar séra Jakobs Rollands. Talsmaður kaþólikka á Íslandi bendir á það að í Eden voru Adam og Eva en ekki Adam og Adam eða Eva og Eva. Þetta fer voðalega í taugarnar á samfylkingarmönnum sem þurfa að hatast út í nágrannann með stasístælum og hóta með lögum og handtöku fyrir hatursorðræðu.

Spurning dagsins er:

Ef Jesú talaði á Alþingi í dag – yrði hann kærður fyrir hatursorðræðu?

Ef svo – yrði hann þá settur í steininn fyrir hatur vegna þess að hann predikar samruna holds gagnstæðra kynja sem skapa ný líf og fjölgar mannkyni?

Hatur Sigmundar Ernis út í kaþólikka er sálfræðilegt vandamál þingmannsins, en ef sá góði rómur sem gerður var að reiðikasti hans á þingi verður að stasístefnu á Íslandi verður raunveruleikinn þessi:

Í dag: „Handtakið Jesú fyrir hatursorðræðu.“

Á morgun: „Handtakið alla sem lesa Biblíuna.“