Fullyrðingar um samráð Hvíta hússins og dómsmálaráðuneytis vegna Mar-a-Lago aðgerðar

Vopnaður vörður við heimili Bandaríkjaforseta Mar-a-Lago, Flórída, þegar FBI gerði áhlaup til að rannsaka „stolin skjöl” heima hjá Trump. Þeir fundu engin slík og verið að rannsaka tengsl Biden og Hvíta hússins við málið.

Nýlega hafa komið fram fullyrðingar um að tölvupóstar innan bandarísku alríkislögreglunnar bendi til samskipta milli Hvíta hússins og dómsmálaráðuneytisins í aðdraganda húsleitar á heimili Donalds Trupms í Mar-a-Lago. Málið tengist rannsókn á meðferð trúnaðarskjala sem fundust á heimili Donalds Trump árið 2022.

Húsleit á bústað Mar-a-Lago í Flórída var framkvæmd í ágúst 2022 af FBI. Þar voru teknir kassar með skjölum sem tengdust starfstíð Donald Trump sem forseta. Aðgerðin var hluti af rannsókn á því, hvort trúnaðarskjöl hefðu verið geymd ólöglega eftir að Trump lét af embætti.

Samkvæmt umfjöllun Fox News hafa nýir tölvupóstar frá maí 2022 sýnt samskipti milli skrifstofu lögfræðings Joe Biden í Hvíta húsinu og dómsmálaráðuneytisins um yfirheyrslu á Walt Nauta. Nauta starfaði áður í Hvíta húsinu og síðar sem starfsmaður Trump á Mar-a-Lago.

Hvíta húsið hafði áður sagt að forsetinn hefði ekki haft fyrirfram vitneskju um húsleitina og að Biden hefði fyrst frétt af henni í fjölmiðlum.

Rannsókn á trúnaðarskjölum

Rannsóknin hófst eftir að þjóðskjalasafnið fór fram á að skjöl sem tilheyrðu forsetaskjalasafni yrðu afhent. Starfsmenn stofnunarinnar höfðu heimsótt Mar-a-Lago fyrr árið 2022 til að krefjast tiltekinna gagna.

Síðar var sérstakur saksóknari skipaður til að rannsaka málið. Það var Jack Smith, sem var skipaður af dómsmálaráðuneytinu í nóvember 2022 til að fara með rannsókn á meðferð trúnaðarskjala og öðrum tengdum málum.

Í júní 2023 var Trump ákærður í málinu ásamt Walt Nauta. Samkvæmt ákæru var Nauta meðal annars sakaður um samsæri, að halda eftir skjölum, að leyna gögnum við rannsókn og að gefa rangar upplýsingar. Ákærur á hendur Nauta voru síðar felldar niður.

Samskipti milli stofnana

Árið 2024 voru skjöl úr málinu gerð opinber með ákvörðun dómara Aileen Cannon. Þau sýndu meðal annars samskipti milli dómsmálaráðuneytisins, þjóðskjalasafnsins og lögfræðinga Hvíta hússins.

Samkvæmt gögnum fundaði aðallögfræðingur þjóðskjalasafnsins, Gary Stern, í Hvíta húsinu daginn áður en ákæra gegn Trump var birt 8. júní 2023. Þar hitti hann meðal annars lögfræðing forsetans, Richard Sauber.

Gögnum málsins ber þó ekki saman um túlkun á samskiptunum. Sumir halda því fram að þau sýni samráð milli stjórnsýslustofnana, á meðan aðrir telja samskiptin eðlilegan hluta af ferli þar sem fleiri en ein ríkisstofnun koma að rannsókn.

Málið um skjölin frá Mar-a-Lago heldur áfram að vera umdeilt í bandarískum stjórnmálum og er eitt af þeim málum sem hefur haft áhrif á pólitíska umræðu í landinu undanfarin ár.