Ódæðismaðurinn ólöglegur innflytjandi sem Biden flaug inn frá Afghanistan

Fox News greinir frá því að ódæðismaðurinn sem skaut tvo þjóðvarðliða í Washington í gær sé Rahmanullah Lakanwal, 29 ára gamall Afgani. Han kom til Bandaríkjanna 2021 með vél í aðgerð Joe Bidens fv. forseta Bandamenn velkomnir sem flutti ónafngreinda Afgani frá Afghanistan til Bandaríkjanna þegar Biden dró bandaríkjaher til baka frá landinu.

Lakanwal hafði engar lagalega forsendur fyrir dvöl sinni í Bandaríkjunum, þar sem landvistarleyfi hans var útrunnið og dvöl hans því ólögleg. Trump sendi 500 þjóðvarðliða til viðbótar þeim 2000 sem eru í Washington. Í ávarpi sagði Trump um Rahmanullah Lakanwal:

„Hann var fluttur inn af stjórn Bidens í september 2021 með þessum alræmdu flugferðum sem allir voru að tala um – enginn vissi hver var að koma, enginn vissi neitt um það. Staða hans var framlengd með lögum sem undirrituð voru af forseta Biden, hörmulegum forseta, þeim verstu í sögu landsins okkar. Við verðum núna að endurskoða alla útlendinga sem hafa komið inn í landið frá Afganistan undir stjórn Bidens og við verðum að grípa til allra nauðsynlegra ráðstafana til að tryggja að allir útlendingar frá hvaða landi sem er sem eiga ekki heima hér eða bæta ekki hag okkar verði fjarlægðir.“

Trump ræddi um að um hryðjuverk væri að ræða en samkvæmt Nick Sorter heyrðist árásarmaðurinn hrópa Allah er mikill þegar hann skaut þjóðvarðliðana.

Samkvæmt blaðamanninum Andy Ngo styðja öfgavinstrimenn á miðlinum Bluesky ódæðið og segja „að árásin sé svar við komu þjóðvarðliðanna í höfuðborginni.”

Fara efst á síðu