Trump sendir 500 fleiri þjóðvarðliða til Washington

Mynd frá samfélagsmiðlum sýnir tvo lögreglumenn bregðast við skotnum þjóðvarðliða í Washington í dag

Uppfærð frétt: Sagt var áður að þjóðvarðliðarnir tveir væru látnir en fréttir berast að svo sé ekki heldur eru þeir milli heims og heljar á sjúkrahúsi. Fréttin hefur verið lagfærð.

Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði að Trump hefði fyrirskipað 500 fleiri þjóðvarðliða til Washington eftir ódæðis skotárásina í dag á þjóðvarðliða í Washington nærri Hvíta húsinu. Farið var með tvo alvarlega særða þjóðvarðliða á sjúkrahús. Ódæðismaðurinn náðist og er í haldi alvarlega særður.

Trump skrifaði á samfélagsmiðlinum Truth:

„Skepnan sem skaut þjóðvarðliðana tvo, sem báðir eru lífshættulega særðir og eru á tveimur aðskildum sjúkrahúsum, er einnig alvarlega særð, en óháð því mun hún gjalda dýru verði. Guð blessi þjóðvarðliðið okkar og allan herinn okkar og lögregluna. Þetta er sannarlega frábært fólk. Ég, sem forseti Bandaríkjanna, og allir sem tengjast forsetaembættinu, erum með ykkur!”

Varnarmálaráðherrann sagði að árásin á þjóðvarðliðana væri huglaus og verið væri að ráðast á það fínasta sem Bandaríkin ættu, föðurlandsvini sem eru reiðubúnir að setja líf sitt í hættu fyrir fólk sem þeir þekktu ekki til að verja höfuðborgina sem þeim þætti vænt um. Hegseth sagði að ríkisstjórnin myndi tryggja öryggið í höfuðborginni og aldrei gefa eftir fyrir glæpamönnum, Trump myndi aldrei leyfa slíkt og þess vegna hafi hann verið kosinn forseti. Hegseth lét herinn fá tilskipun Trumps um 500 auka þjóðvarðliða til að takast á við glæpamennskuna í höfuðborginni.

Fara efst á síðu