Í Danmörku eru tölurnar skýrar varðandi afbrot innflytjenda og hvernig aðlögunin gengur. Tölfræði sýnir meðal annars að annar hver karlmaður frá Mið-Austurlöndum, Norður-Afríku, Pakistan og Tyrklandi hefur verið dæmdur fyrir að fremja glæp.
Frá árinu 2012 hefur danska ríkisstjórnin birt svo kallaðan aðlögunarmæli sem er mælikvarði á hvernig aðlögun innflytjenda gengur með níu þáttum eins og vinnu, menntun og glæpastarfsemi.
Auk mælisins er einnig gefin út skýrslan „Glæpir meðal innflytjenda og afkomenda frá MENAPT-löndum“ (sjá að neðan) sem sýnir hátt hlutfall glæpa karlmanna frá þessum löndum. 31% innfluttra karla sem fæddir eru árið 1997 hafa verið dæmdir fyrir glæp fyrir 25 ára aldur, samanborið við níu prósent meðal danskra karla á sama aldri.
Fyrir ári síðan fól sænska ríkisstjórnin Hagstofu Svíþjóðar að framleiða sænska útgáfu af aðlögunarmælinum en þá var mæling glæpamennsku sleppt. Blaðamaðurinn Per Gudmundson gerir samt ráð fyrir því að glæpir sænskra innflytjenda séu svipaðir og þeir dönsku.
