Nýtt met í vindorkubransanum í Svíþjóð: 6,3 milljarða sænskra króna tap ár 2024

Í uppfærðri greiningu um afkomu vindorkubransans í Svíþjóð fyrir ár 2024 skrifa þeir Christian Sandström og Christian Steinbeck að tapið sé nýtt met upp á 6,3 milljarða sænskra króna (um 86 milljarðar íslenskar kr). Grein þeirra birtist í vísindaritinu Ekonomisk Debatt og nær yfir 85% af allri raforkuframleiðslu með vindorku ár 2024.

Bransinn tapaði 6,3 milljörðum sænskra króna 2024 og eftir fjárhagslegar leiðréttingar varð tapið mínus 51%. Útkoman er verri en ár 2023 þegar tapið varð 5,2 milljarðar og eftir að fjárhagsleg staða var innreiknuð var tapið mínus 39%.

Á myndinni hér að neðan má sjá hvernig veltan minnkar (ljósblátt) þrátt fyrir meiri raforkuframleiðslu og tapið eykst (dökkblátt). 210 vindorkugarðar sem framleiða 85% þess rafmagns sem framleitt er með vindorku í Svíþjóð eru í þessum útreikningum.

2024 markar hæsta tapið frá upphafi slíkra útreikninga og veltan minnkaði um 7% 2023-2024 þrátt fyrir 19% meiri raforkuframleiðslu. Meiri rafmagnsframleiðsla og minnkandi velta þýðir að verðið sem fæst fyrir rafmagnið hefur minnkað verulega. 58 af 244 fyrirtækjum sem voru skoðuð skrifa í ársskýrslum sínum að aukið framboð á rafmagni hafi neikvæð áhrif á veltu fyrirtækjanna.

Tapið er mest í norðurhluta Svíþjóðar og þar er virði vindorkuvera um 10 evra á framleitt megawatt en var þegar verið var að byggja vindorkuverin eins og til dæmis Markbygden Ett hjá Piteå þá var andvirðið 1,23 milljónir evra á hvert megawatt. Mörg fyrirtæki reyna að losna við vindorkuverin en engir kaupendur finnast, ekki einu sinni fyrir 10 evru á megawattið.

Graf 2 sýnir hlutfall vindorkuvera með tapi af heildarfjölda vindorkuvera og hefur fjöldinn aldrei verið hærri áður eða heil 80% vindorkuveranna.

Vissar gerðir vindorkuvera í eigu fyrirtækja í eigu sveitarfélaga birta ekki ársreikninga sína sérstaklega og því ekki hægt að skoða þau sérstaklega. Fyrirtækin sem eru með í rannsókninni framleiddu 40,6 Terrawatttíma ár 2024 sem má bera saman við heildarraforkuframleiðslu vindorku í Svíþjóð það er sem var 48 Terrawatttímar. Rannsóknin nær því yfir 85% af raforkuframleiðslu vindorku í Svíþjóð með vindkrafti.

Fara efst á síðu