Bændur rísa upp enn á ný gegn reglugerðarrugli ESB og hatri búrókratanna á bændum. Margir muna eftir bændamótmælunum, þegar Mark Rutte ætlaði að ríkisvæða jarðir bænda í Hollandi og flæma burt frá störfum sínum. Mótmæli gegn samningum ESB við lönd hinum megin á hnettinum til að flytja inn landbúnaðarvörur til ESB og einnig frá Úkraínu, þar sem bændur þar þurfa ekki að uppfylla kröfur ESB um græna staðla og annað rugl sem eyðileggur jafna samkeppni milli ríkja og skilur bændur ESB eftir með byrðir og kostnað sem aðrir þurfa ekki að bera.
Nýlega ákváðu yfirvöld í Frakklandi að farga öllum kúm á einu bændabýli vegna sýkingar í einni kú og hefur sú ákvörðun skapað öngþveiti í landinu vegna mótmæla bænda. Í Bretlandi fóru þúsundir bændur til London, þegar fjárlög voru afgreidd til að mótmæla skattaálögum sósíaldemókratískrar stjórnar Verkamannaflokksins sem mun neyða hluta bænda til að hrökklast frá búum sínum vegna þess að þeir geta ekki borgað skattana. Síðar í vikunni munu bændur víða að úr ESB flykkjast til Brussel til mótmæla og núna mótmæla bændur í Grikklandi reglugerðafargani ESB ásamt því að landbúnaðarstyrkir ESB hafa enn ekki verið útborgaðir.
Hér að neðan eru örfá dæmi um ástandið og meira kemur síðar.
ESB mótmælt og ESB fáninn fjarlægður:
Bændur við Versalahöllina:
Franskir bændur mótmæla slátrun kúa vegna sýkingu í einni þeirra:
Því miður höfum við ekki önnur vopn en verkfærin okkar. Bændur sprauta kúaskít á byggingar ráðamanna í Frakklandi
Grískir bændur mótmæla því að ESB hefur ekki borgað út landbúnaðarstyrki eins og um var samið:
Mótmæli í London:
