Varðskipið Þór í einu af þorskastríðum Íslands á fyrri öld.
Aldarafmælis Geirs Hallgrímssonar var minnst á tvenns konar hátt í gær. Morgunblaðið hefur góða yfirlitsgrein um störf Geirs meðal annars sem borgarstjóra fyrir Reykjavíkurbúa og síðar störf í þágu þjóðarinnar allrar sem utanríkisráðherra og forsætisráðherra og síðustu árin sem Seðlabankastjóri. Þá ritar formaður Sjálfstæðisflokksins, Guðrún Hafsteinsdóttir, afmælisgrein um arfleifðina eftir Geir Hallgrímsson.
Þótt hetjur Íslands séu sjómenn sem daglega berjast við veður- og hafsguðina, þá verður nafn Geirs Hallgrímssonar ætíð bundið við útfærslu landhelginnar í 200 mílur en hann leiddi þjóðina farsællega gegnum einn háskalegasta tíma hennar í fullveldisbaráttu landhelginnar. Nató ríkið Bretland sýndi vinaþjóð sinni einstaklegan óvinaskap og sendi herskip hennar hátignar á vettvang til að berjast við íslensku landhelgisgæsluna og tryggja ránveiðar breskra togara í íslenskri landhelgi.
Allir vita hvernig fór og skiptu leiðtogahæfileikar Geirs Hallgrímssonar afgerandi máli fyrir þjóðina sem sigraði og varð leiðarstjarna í landhelgismálum þjóða út um allan heim. Þess vegna er full ástæða til að halda upp á aldarafmælið og það sem áunnist hefur og minnast Geirs og annarra landsmanna sem unnu óeigingjarnt starf fyrir þjóðina á örlagatímum með ótrúlegum árangri.
Öll makrílvinnsla á Íslandi úti – Árangri landhelgisbaráttunnar eytt
En aðrir vilja halda upp á aldarafmæli Geirs Hallgrímssonar á sinn hátt með niðurlægingu þjóðarinnar eins og í nýgerðum makrílsamningum. Núverandi ríkisstjórn sem sett hefur hagsmuni þjóðarinnar í spennitreyju og lokað í myrkum kjallara til að geta unnið að hagsmunum ESB á Íslandi undirritaði nýverið veiðisamning um makríl, þar sem hagur ESB er í hávegum hafður en hagur Íslands fyrir borð borinn.
Margir höfðu orð á því í gær, hversu illa samningamenn þjóðarinnar hefðu staðið sig í makrílsamningnum sem skert hefur hag Íslands í makrílveiðum. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi mótmæla en ríkisstjórnin er í stríði gegn þeim fyrirtækjum með skattglíru í augunum, því enginn má græða fimmaur í þeirri grein. Þá hafa einstakir þingmenn bæði Sjálfstæðisflokks og Flokks fólksins mótmælt og bent á veikari stöðu Íslands sem ESB hefur hagnast á. Sigurður Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum, segir í viðtali við Mbl. að samningurinn sé „högg fyrir atvinnugreinina“ og að „öll makrílvinnsla á Íslandi er úti.“
Jón Bjarnason fyrrum sjávarútvegsmálaráðherra, skrifar um málið á blog.is:
„Við tókum slag um makríl 2009 – 2013. Makrílveiðarnar björguðu okkur í hruninu þegar átti að svelta Íslendinga í hruninu til hlýðni við ESB. Við tókum okkur 16,5 % af heildarveiðum í makríl. Ísland hefur fengið yfir 40 – tugi milljarða tekjur á ári þessi ár.“
Hagsmunum og rétti Íslands er fórnað í ESB vegferð
„Farnar eru nú krókaleiðir til þess að ná ESB markmiðum – að skera niður íslenskar makrílheimildir til þess að lokum geta boðið ESB samninga á ný. Sett er á svið leikrit……Tug þúsunda eða hundruð þúsunda tonna veiðiheimilda í makríl er fórnað í ESB vegferðina…….Verið er nú að gefa fordæmi fyrir samninga um aðra deilistofna til ESB. Nú er skorið niður margfalt magn þess sem deilt var um þá með einu pennastriki – til þess að þóknast ESB vegferð Viðreisnar.“
„Alþingi á að hafna framsali á þessum hagsmunum þjóðarinnar.“
Þjóðólfur tekur undir þessi orð. Jón Bjarnason bendir á að samningurinn gildir ekki fyrr en Alþingi staðfesti hann.
Núna reynir á „pakkið“ að standa sig og kasta þessum samningi fyrir róða – annars hefur forseti Alþingis lög að mæla með orðum sínum um „andskotans, djöfulsins, helvítis pakkið“ við Austurvöll.
