Ísraelsk stjórnvöld segja að æðsti leiðtogi Írans, Ayatollah Ali Khamenei, hafi fallið í umfangsmiklum loftárásum sem Bandaríkin og Ísrael gerðu á írönsk skotmörk um helgina. Ef staðfest reynist markar andlát hans söguleg tímamót í átökum ríkjanna og gæti haft víðtækar afleiðingar fyrir stöðugleika í Miðausturlöndum.
Samkvæmt fréttum hófu Bandaríkin og Ísrael eina umfangsmestu hernaðaraðgerð gegn Íran í áratugi á laugardag. Ísraelsk stjórnvöld segja að Khamenei hafi verið drepinn í aðgerðinni og að lík hans hafi fundist, að sögn háttsetts embættismanns sem ræddi við Reuters. Íranar hafa hins vegar fordæmt árásirnar sem tilefnislausar og ólöglegar.
Fyrr hafði verið greint frá því að Khamenei hefði yfirgefið Teheran og verið fluttur á öruggan stað meðan á árásunum stóð. Forsætisráðherra Ísraels, Benjamin Netanyahu, sagði áður að „vaxandi vísbendingar“ bentu til þess að Khamenei væri „farinn.“
Umfangsmikil hernaðaraðgerð
Samkvæmt Reuters og Axios var aðgerðin samstillt hernaðaraðgerð Bandaríkjanna og Ísraels. Sendiherra Ísraels í Washington upplýsti bandarísk stjórnvöld um að Khamenei hefði verið felldur í árás Ísraela. Ísraelskur embættismaður staðfesti jafnframt við Axios að samkvæmt ísraelskum leyniþjónustuupplýsingum væri hann látinn.
Samtímis hefur Íran svarað árásunum með því að skjóta eldflaugum að Ísrael og að minnsta kosti sjö öðrum ríkjum, þar á meðal Persaflóaríkjum sem hýsa bandarískar herstöðvar. Ísraelsher heldur áfram árásum á skotmörk innan Írans, samkvæmt fréttum.
Khamenei, sem var 86 ára, hafði leitt Íran í 35 ár og var einn langlífasti einræðisherra heims. Dauði hans, ef rétt reynist, er talinn mikið áfall fyrir stjórnkerfi landsins og gæti hraðað hruni þess, sem bandarísk og ísraelsk stjórnvöld hafa lýst sem yfirlýstu markmiði sínu.
Óvissa ríkir þó enn um framhaldið, en þróun mála gæti haft afgerandi áhrif á valdajafnvægið í Miðausturlöndum á næstu misserum.
Donald Trump skrifaði nýlega meðal annars:
Khamenei, einn illgjarnasti maður sögunnar, er látinn. Þetta er ekki aðeins réttlæti fyrir íbúa Írans, heldur fyrir alla hina miklu Bandaríkjamenn og fólk margra landa um allan heim, sem hafa verið drepnin eða limlest af Khamenei og blóðþyrstum glæpamönnum hans. Honum tókst ekki að komast hjá leyniþjónustu okkar og mjög háþróuðu eftirlitskerfi og í nánu samstarfi við Ísrael var ekkert sem hann, eða aðrir leiðtogar sem drápu með honum, gátu gert.
Þetta er stærsta tækifærið fyrir íbúa Írans til að endurheimta landið sitt. Við heyrum að margir úr byltingarvarðliðinu þeirra, hernum og öðrum öryggis- og lögregluliðum vilja ekki lengur berjast og sækjast eftir friðhelgi frá okkur.
Eins og ég sagði í gærkvöldi: „Nú geta þeir fengið friðhelgi, síðar fá þeir aðeins dauðann!“
Þökkum ykkur fyrir athyglina á þessu máli. DONALD J. TRUMP FORSETI
