Nærri 5.000 ákærur hafa verið lagðar fram gegn einstaklingum sem hafa gagnrýnt Friedrich Merz, kanslara Þýskalands, – með aðstoð fyrirtækisins So Done, sem sérhæfir sig í málaferlum gegn netnotendum.
Þýska fyrirtækið So Done staðfestir að það hafi, fyrir hönd kanslara Þýskalands, Friedrichs Merz, lagt fram um 4.900 ákærur gegn netnotendum. Þeir eru sakaðir um að hafa gagnrýnt Merz á samfélagsmiðlum, að sögn Nius.
„Við höfum lagt fram um 4.900 ákærur fyrir hönd Merz” segir Dominik Storr frá So Done við Nius.
Ákærurnar varða meðal annars færslur, athugasemdir og kaldhæðnislegar myndir sem taldar eru fara út fyrir það sem heimilt er samkvæmt þýskum lögum.
Margir lögfræðingar telja að umfang málsins veki upp spurningar um jafnvægið á milli réttarverndar og tjáningarfrelsis. Það er óvenjulegt að stjórnmálamaður grípi til svo stórfelldra aðgerða gegn einstaklingum sem tjá sig á gagnrýninn hátt á netinu.
Einnig hefur verið bent á að margar af færslunum eru pólitískt háð sem nýtur sérstakrar réttarverndar sem tjáningarform í mörgum löndum.
Eftir að kærur kanslarans voru gerðar opinberar, þá hafa komið fram tillögur um að styrkja vernd einstaklinga sem taka þátt í samfélagsumræðunni á netinu.
