McGregor varar við langvinnu svæðisstríði og veikingu Bandaríkjanna

Bandaríski ofurstinn og fyrrverandi ráðgjafi varnarmálaráðuneytisins, Douglas McGregor, segir stríðið gegn Íran vera komið á hættulegt stig þar sem átökin hafi þegar þróast úr tvíhliða deilu yfir í víðtækt svæðisstríð. Í viðtali við Glenn Diesen telur hann að vonir um skjótan sigur eða stjórnarskipti í Teheran hafi brugðist og að Bandaríkin standi frammi fyrir langvarandi átökum með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.

Að sögn McGregor hafa Íranar beint árásum að að minnsta kosti 27 herstöðvum og hafnarsvæðum í Miðausturlöndum, allt frá Incirlik-flugherstöðinni í Tyrklandi til Dubai í Persaflóa. Olíumarkaðir í Evrópu hafi þegar brugðist við með um 20% hækkun, þar sem óttast sé að framboðið raskist. Hann telur líklegt að olíuverð fari hratt yfir 100 dollara tunnan.

Þá segir hann ódýr drónavopn hafa reynst árangursrík gegn dýrum loftvarnakerfum og að flugvellir og hafnir í Sameinuðu arabísku furstadæmunum hafi lamast. Milljónir erlendra ríkisborgara, þar á meðal indverskir viðskiptamenn, séu strandaglópar á svæðinu. McGregor telur einnig að olíuhreinsunarstöðvar, meðal annars í Sádi-Arabíu, hafi orðið fyrir árásum og að frekari skemmdir séu í vændum.

Skortir heildstæða stefnu

McGregor gagnrýnir stjórnvöld í Washington fyrir skort á heildstæðri stefnu. Hann segir hernaðarlega yfirburði í fyrstu lotu, þar sem meðal annars æðsti leiðtogi Írans var felldur, ekki duga til að vinna stríð. „Taktík vinnur orrustur en stefna vinnur stríð“ segir hann og bætir við að ekki sé ljóst hver endanleg markmið Bandaríkjanna séu ef stjórnarskiptin mistakast.

Hann telur Íran ekki vera á barmi upplausnar þrátt fyrir dauða æðsta leiðtogans og bendir á að hernaðarleg geta landsins sé dreifð og erfið viðfangs. Þá varar hann við því að birgðir Bandaríkjanna af eldflaugum og loftvarnarkerfum kunni að tæmast hraðar en gert hafi verið ráð fyrir, einkum í ljósi vopnasendinga til Úkraínu.

McGregor segir að ef átökin dragist á langinn muni staða Bandaríkjanna veikjast í augum heimsins. Hann segir:

„Eftir því sem stríðið stendur lengur, því veikari lítum við út og því sterkari lítur Íran út, svo lengi sem landið kemst af.“

Ótti við frekari stigmögnun

Aðspurður um mögulega aðkomu annarra stórvelda nefnir McGregor að bæði Rússland og Kína eigi verulegra hagsmuna að gæta í Íran og gætu gripið inn í ef átökin harðna enn frekar. Sérstaklega varar hann við þeirri sviðsmynd að Ísrael beiti kjarnorkuvopnum sem hann telur geta kallað fram bein viðbrögð frá Moskvu og Peking.

Hann spáir einnig að efnahagslegar afleiðingar kunni að reynast Bandaríkjunum þungbærar, meðal annars með veikingu dollarsins og hækkandi ávöxtunarkröfu á ríkisskuldabréf. Slík þróun gæti, að hans mati, leitt til alvarlegrar fjármálakreppu.

Í heild sinni telur McGregor að átökin marki endalok þess sem hann kallar hina gömlu skipan í Miðausturlöndum og jafnvel hnignun bandarískra yfirráða á svæðinu. Hann sér fá merki þess að samkomulag sé fljótlega í augsýn og telur að þróunin næstu vikur muni ráða miklu um stöðu stórveldanna til lengri tíma.

Þáttinn má sjá á Youtube hér að neðan: