Heimildarmynd um loftslagsbreytingar í ljósi sögunnar
Ný heimildarmynd frá Freedom Research beinir sjónum að dramatískum loftslagsbreytingum síðustu þúsund ár sem mælir gegn þeirri hugmynd að loftslagsbreytingar séu einungis nútímalegt fyrirbæri. Myndin sýnir að saga loftslagsins er flóknari en oft er haldið fram í samtímanum.
Í myndinni er farið yfir hlýskeið miðalda, þegar víkingar stunduðu landbúnað á Grænlandi, og kuldaskeiðið sem nefnt hefur verið Litla ísöldin, þegar áin Thames í London fraus og hungursneyð gekk yfir víða í Evrópu. Með þessu er sýnt fram á að loftslag jarðar hefur sveiflast mikið löngu áður en iðnvæðing hófst.
Ríkjandi frásögn tekin úr sögulegu samhengi
Meðal viðmælenda er eðlisfræðingurinn William Happer sem er heimsþekktur fræðimaður. Myndin fjallar um hvers vegna hlýskeið miðalda hafi að mestu horfið úr nútímaumræðu um loftslagsmál, hvernig Litla ísöldin mótaði þróun samfélaga og hvaða pólitísku áhrif svokallaða „hokkístafsgrafið“ hafi haft.
Þá er varpað fram þeirri spurningu, hvort núverandi hlýnun sé fordæmalaus í sögulegu samhengi eða hluti af lengri náttúrulegri sveiflu. Í kynningu myndarinnar er áhorfendur hvattir til að horfa með gagnrýnum huga og mynda sér sjálfstæða skoðun á efninu.
Heimildarmyndin setur þannig núverandi loftslagsumræðu í sögulegt samhengi og vekur spurningar um hvernig fortíðin er túlkuð og sett fram í opinberri umræðu.
