Köld kveðja íranskrar fréttakonu Sky News Ástralíu til Khamenei

Ástralska-fréttakonan Rita Panahi vakti mikla athygli um helgina, þegar hún sendi frá sér kalda en samtímis eldfima kveðju til æðsta leiðtoga Írans, Ayatollah Khamenei, eftir að tilkynnt var um dauða hans í sameiginlegri hernaðaraðgerð Bandaríkjanna og Ísraels.

Khamenei féll í aðgerðinni Söguleg reiði þar sem einnig er talið að felldir voru að minnsta kosti 40 háttsettir leiðtogar írönsku stjórnarinnar. Dauði Khamenei hefur vakið sterk viðbrögð víða um heim og hafa Íranir erlendis fagnað tíðindunum. Forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, hvatti í kjölfarið írönsku þjóðina til að „taka land sitt aftur.“

Rita Panahi, sem starfar sem þáttastjórnandi hjá Sky News Australia, er fædd í Íran en flúði til Ástralíu sem flóttamaður á níunda áratugnum. Í beinni útsendingu á laugardag, eftir að dauði Khamenei hafði verið staðfestur, lét hún orð falla sem hafa síðan farið víða á samfélagsmiðlum. Panahi sagði:

„Þetta verður stysta fréttin sem ég hef flutt. Eftir 47 ár af íslamskri harðstjórn er einræðisherrann dáinn og Íran á barmi frelsis. Ég hélt aldrei að ég myndi sjá þennan dag á minni ævi.“

Panahi beindi síðan orðum sínum beint að hinum látna leiðtoga og sagði:

„Skammastu þín. Brenndu í helvíti.“

Samstarfsfólk hennar sagðist ekki hafa neitt við orð hennar að bæta.