Útspil Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra í The Guardian 27. maí er aumkunarvert og íslensku þjóðinni til háborinnar skammar. Greinilega er hún skákuð út í horn í ESB-umræðunni á Íslandi og flýr því til útlanda til að skæla í breskum fjölmiðli og höfða til andstæðinga Nigel Farage og flokks hans Reform UK í von um stuðning. Konan sem segist ætla að standa á varðbergi gagnvart erlendum áhrifum í ESB umræðum á Íslandi gerði ICE-EXIT og biður um stuðning erlendis til að ráða niðurlögum hræðilegra ESB andstæðinga á Íslandi sem fyrir utan að stunda samsæriskenningar og vinna fyrir Pútín – nota gervigreind. Hugsið ykkur: nota gervigreind! Hvílíkur annars eins glæpur á byggðu bóli. Sjálf mætti utanríkisráðherrann fara á gervigreindarnámskeið til að læra að nota verkfærið sem sækir upplýsingar á Internet á ótrúlegum hraða. En það má alls ekki gerast að almenningur sæki sjálfur upplýsingar. Vegferð þjóðarinnar með slíkum utanríkisráðherra er eins og að vera í söðli Guðrúnar með djákninum á Myrká sem segir: Máninn líður, dauðinn ríður. Sérðu ekki hvítan blett á hnakkanum, Garún, Garún?” Þjóðin gerði réttast í að leggja slíka útreiðartúra niður í skyndi.
Hún óttast Brexit í landi sem ekki er meðlimur í ESB. Úr hverju á Ísland að fara? Aðildarumsókninni frá 2009? Það væri þá helst það. Hún ásakar Nigel Farage fyrir að hafa teiknað upp rökin gegn aðild Íslands að ESB. Til hamingju Nigel! Þú gerir það enn einu sinni! Bjargar fullveldi þjóða!
Þorgerður getur barasta ekki komist yfir það að reyndar er til fólk á Íslandi sem bæði les, hlustar og hugsar sjálft. Hún hefur martraðir á nóttunni vegna draugsins Sigmundar og svo þessa bannsetta Farage með leikbókina sína sem eyðileggur allt og alla.

Og svo var það þetta: Skotmark Rússa! Núna er það Rússagrýlan. En hvernig má það vera, þegar búið er að loka sendiráði Íslands í Moskvu og nær enginn eftir í sendiráði Rússlands á Íslandi?

Og svo er það gervigreindin, það verður bara að banna þessa andskotans gervigreind. Hún framleiðir falsfréttir á ógnarhraða:

Ónafngreind heilaþvottamiðstöð ESB og WEF. Eitt stuð á dag kemur öllu í lag.

