Loftslagsáætlun SÞ er liður í að koma á sósíalískri alræðisstjórn í heiminum

Ástralski öldungadeildarþingmaðurinn Malcolm Roberts ræðir um loftslagsáætlun Sameinuðu þjóðanna á myndskeiði hér að neðan og skýrir markmiðin að baki:

Maurice Strong, eldri búrókrati Sameinuðu þjóðanna, er höfundur kenningarinnar um hlýnun jarðar og síðar loftslagsbreytinganna. Hann sagði það vera lífsmarkmið sitt að afiðnaðarvæða vestræna siðmenningu og koma á fót ókjörnum sósíalískum alþjóðlegum stjórnvöldum. Hann lýsti yfir þessum markmiðum. Hann sagði

„Mannkynið er óvinurinn.“

Hann var meðstofnandi og stjórnandi Chicago Climate Exchange, sem reyndi að græða billjónir dollara á alþjóðlegum viðskiptum með koltvísýringsréttindi. Skiljið þið þetta núna?

Bandaríska lögreglan leitaði að Maurice Strong fyrir margvíslega glæpi og hann fór í sjálfsútlegð til Kína, sem nýtur mikils ávinnings af loftslags- og orkustefnu Vesturlanda. Figueres og Edenhoffer, eldri starfsmenn Sameinuðu þjóðanna sem sjá um loftslagsmálin, viðurkenna að loftslagsáætlunin snýst ekki um umhverfið. Hún snýst um að breyta samfélaginu og efnahagsmálunum með vísan til „Nýrrar efnahagsskipunar í heiminum.“ Orðin eru þeirra.

Þetta snýst allt um að taka yfir stjórnun og flytja fjármagn frá okkur fólkinu til alþjóðlegra fyrirtækja, fjárfestingarsjóða, banka, samhæfðra milljarðamæringa og Sameinuðu þjóðanna.

Fara efst á síðu