Hópur kvenna frá nunnuklaustri Elísabetar í Hvíta-Rússlandi heimsótti Tibble-kirkjuna í Täby, norðan við Stokkhólm, til að selja vettlinga, sjöl og rússneskar dúkkur. Nú ætlar Johan Forssell innflytjendaráðherra Svíþjóðar að tryggja að konunum verði aldrei leyft að stíga aftur fæti inn í Svíþjóð. „Okkur ber engin skylda til að sýna þeim gestrisni.“
Þrátt fyrir loforð um að snúa við skipinu og minnka móttöku innflytjenda til Svíþjóðar, þá heldur ríkisstjórnin að taka á móti jafn mörgum innflytjendum og fyrri ríkisstjórnir sósíaldemókrata. Í ár úthlutar „hægri“ stjórnin um 100.000 dvalarleyfum. Enginn veit hversu margir morðingjar eru meðal þeirra sem fá dvalarleyfi eða dveljast ólöglega í Svíþjóð.
Forssell telur mikilvægara að endurskoða reglurnar svo kristnum Evrópubúum með „tengsl við rússneska hagsmuni“ verði bannað að heimsækja Svíþjóð eftir að nunnur frá Hvíta-Rússlandi heimsóttu Svíþjóð í boði sænsku kirkjunnar.
Í skriflegri athugasemd til útvarpsstöðvarinnar P4 Stockholm skrifar Forssell:
„Það gæti verið ástæða til að endurskoða möguleika fólks með tengsl við hagsmuni rússneska ríkisins til að dvelja í Svíþjóð. Við höfum enga skyldu til að sýna gestrisni við fólk sem styður árásarstríð Rússa gegn Úkraínu.“
Forssell ætlar að hafa samband við Útlendingastofnunina til að athuga hvort breyta þurfi núverandi reglum.
Nýlega seldu nunnur frá klaustri St. Elísabetar í Hvíta-Rússlandi handverksvörur í Tibble-kirkjunni í Täby. Lisa-Gun Bernerstedt, yfirmaður borgaralegs viðbúnaðar í sænsku kirkjunni brást ókristilega við og segir í viðtali við sænska útvarpið:
„Í raun styðja þær rússneska stjórnina óbeint og við viljum ekki taka þátt í því.“
Sænska kirkjan hefur varað söfnuði sína við því að vinna ekki með klaustrinu. Klaustur Heilagrar Elísabetar neitar því að það tengist rússneska ríkinu. Fulltrúar þess útskýra fyrir P4 Stockholm að söfnun nunnanna fari til góðgerðarmála, svo sem til matar handa fátækum og umönnun aldraðra.
