Vopnaframleiðendur græða á tá og fingri

Stærstu vopnaframleiðendur heims mokuðu inn mettekjum á síðasta ári. Eftirspurnin jókst hratt í kjölfar stríðanna í Úkraínu og Gaza – og nokkur af stærstu fyrirtækjum heims juku tekjur sínar verulega, þrátt fyrir seinkanir á afhendingu og vanda með framboð á efni. Wallenberg-fjölskylda í Svíþjóð jók hagnað af vopnasölu með 24%.

Samkvæmt nýrri skýrslu frá Alþjóðlegu friðarrannsóknarstofnuninni í Stokkhólmi, SIPRI, (sjá pdf að neðan), þá jukust tekjur 100 stærstu vopnaframleiðenda heims um 5,9% árið 2024. Heimssalan sló nýtt met: 679 milljarðar dollara.

SIPRI bendir á að aukningin stafi af samspili stríðanna í Úkraínu og Gaza, aukinnar landfræðilegrar spennu og sívaxandi herútgjöldum. Vopnafyrirtæki heims auka framleiðslu sína, en á sama tíma standa þau frammi fyrir nýjum flöskuhálsum sem ýta undir kostnað og valda töfum.

Fyrirtækin „nýttu sér mikla eftirspurn“ segir Lorenzo Scarazzato hjá SIPRI en hann varar einnig við því að ýmis konar framleiðsluvandamál geti haft áhrif á bæði verð og afhendingartíma.

Af 100 stærstu fyrirtækjunum eru 39 frá Bandaríkjunum. Tekjur þeirra jukust um 3,8% í 334 milljarða dala. Framleiðslutafir og aukinn kostnaður einkenna mörg af helstu vopnaverkefnum landsins eins og framleiðslu F-35 orrustuflugvéla, kafbáta í Columbia-flokki og nýrra langdrægra Sentinel-eldflauga.

Í Evrópu juku 26 stærstu vopnaframleiðendurnir samanlagðar tekjur sínar um 13% í 151 milljarð dala. Aukningin tengist beint stríðinu í Úkraínu og vörnum Evrópuríkja gegn Rússlandi.

Í Svíþjóð hagnaðist Saab í eigu Wallenberg-fjölskyldunnar um 5,6 milljarða dala árið 2024 á vopnaframleiðslu – sem er 24% aukning miðað við árið á undan.

Czechoslovak Group frá Tékklandi stóð fyrir stærstu aukningunni hjá 100 efstu fyrirtækjunum á listanum með 193% tekjuaukningu upp í 3,6 milljarða dali. Fyrirtækið útvegar Úkraínu meðal annars fallbyssuskot.

Á sama tíma bendir SIPRI á að efnisöflun hafi orðið mun erfiðari fyrir evrópsk fyrirtæki. Airbus og franska Safran keyptu um helming af títanþörf sinni af Rússum fyrir árið 2022 en neyddust til að finna nýja birgja vegna Úkraínustríðsins. Kínverskar útflutningstakmarkanir á mikilvægum steinefnum hafa einnig leitt til aukins kostnaðar og endurskipulagningar á framboðskeðjum fyrirtækja eins og Thales og Rheinmetall.

Tveir helstu vopnaframleiðendur Rússlands, Rostec og United Shipbuilding eru meðal 100 stærstu vopnaframleiðenda heims og juku samanlagðar tekjur sínar um 23% í 31,2 milljarða dala, þrátt fyrir viðskiptaþvinganir og skort á aðföngum. Samkvæmt SIPRI á rússneski vopnaiðnaðurinn í erfiðleikum með að finna hæft vinnuafl sem seinkar bæði framleiðslu og tækniþróun.

Ísraelsk vopnakerfi halda áfram að vera eftirsótt. Þrír stærstu ísraelsku vopnaframleiðendurnir juku tekjur sínar um 16% í 16,2 milljarða dala.

Í fyrsta skipti eru níu fyrirtæki frá Mið-Austurlöndum með á lista SIPRI yfir 100 stærstu fyrirtækin. Samtals höfðu þau 31 milljarða dollara í tekjur. Fimm tyrknesk fyrirtæki komust á listann og ríkisfyrirtækið EDGE í Sameinuðu arabísku furstadæmunum tilkynnti um 4,7 milljarða dala tekjur af vopnasölu.

Fara efst á síðu