Lekið: Trump hvetur lönd til að ganga úr ESB og gerast bandamenn Bandaríkjanna

Nýja þjóðaröryggisstefna Bandaríkjanna heldur áfram að valda pólitískum jarðskjálfta. Lengri útgáfa af skjalinu, sem lekið var til varnarvefsins Defense One, sýnir að Donald Trump forseti vill að fjögur Evrópulönd yfirgefi ESB – og myndi nýtt stjórnmálabandalag við Bandaríkin.

Samkvæmt lekinni útgáfu, sem Defense One hefur séð, eru Austurríki, Ungverjaland, Ítalía og Pólland talin upp sem lönd sem Bandaríkin ættu að „vinna nánar með, með það að markmiði að fá þau til að yfirgefa ESB.“

Í skjalinu segir einnig:

„Við ættum að styðja flokka, hreyfingar og menntamenn og menningarfólk sem sækjast eftir fullveldi og varðveislu eða endurreisn hefðbundinna evrópskra lífshátta – samtímis og þau styðja Bandaríkin.“

Stefnan ber titilinn „Gerum Evrópu frábæra aftur“ og er meðvitað bergmál af kosningaslagorði Trumps sjálfs. Áætlunin lýsir Evrópu sem heimsálfu á barmi „siðmenningarútrýmingar“ vegna fjöldaflutninga og takmarkana á tjáningarfrelsi.

Segjum skilið við glóbalismann

Um er að ræða skýra breytingu í utanríkisstefnu Bandaríkjanna sem núna gengur gegn glóbalismanum. Áætluninni hefur verið lekið og segir að fyrri stefna bandarískra áhrifa, alþjóðleg yfirráð með diplómatískum áhrifum, hafi mistekist. Í skjalinu segir:

„Yfirráð eru röng markmið og ekki hægt að ná þeim.“

Í staðinn leggur stefnan til að Bandaríkin vinni með „svæðismeisturum,“ það er að segja löndum sem deila bandarískum gildum um fullveldi þjóða, sterk fjölskyldubönd og hefðbundna menningu.

Nýr alþjóða vettvangur C5 komi í stað núverandi G7

Lagt er til að stofnaður verði nýr alþjóðlegur vettvangur sem kallast C5 og samanstendur af Bandaríkjunum, Rússlandi, Kína, Indlandi og Japan – stærstu þjóðum heims hvað varðar íbúafjölda og áhrif. Markmiðið er að C5 komi í stað núverandi G7, sem Trump segir vera „of takmarkaðan“ vettvang sem stjórnast af kröfum glóbalista.

Opinbera útgáfan af öryggisstefnunni sem Hvíta húsið hefur birt nefnir ekki þessi atriði, en samkvæmt heimildum innan Defense One er þetta innri heildarútgáfan; leiðsögn um stefnu Hvíta hússins í nánustu framtíð.

Áætlun Trumps felur í sér að Bandaríkin styðja opinskátt evrópskar hreyfingar sem leitast við að endurheimta sjálfstæði þjóða sinna og menningarlega sjálfsmynd. Þetta er bein áskorun við yfirþjóðlegt vald ESB og miðstýringu ákvarðana sambandsins.

Ef áætlunin verður að veruleika gæti hún skapað stærsta heimspólitíska jarðskjálfta í Evrópu eftir kalda stríðinu. Bandaríkin verða bandamaður þeirra ríkja sem taka fullveldi fram yfir embættismannakerfi Evrópusambandsins.

Fara efst á síðu