Klaus Schwab, stofnandi og þar til nýlega formaður World Economic Forum, á núna í erfiðleikum. Hann hætti skyndilega sem formaður samtakanna og verið er að rannsaka rannsaka þátt hans í meintu svindli. Klaus Schwab hefur verið formaður WEF síðan 1971.
Samkvæmt heimildum var nafnlaust bréf sent til stjórnar WEF nýlega frá uppljóstrara, sem innihélt ásakanir um að Schwab fjölskyldan hafi blanda persónulegum efnahag sínum saman við efnhagsmál samtakanna án þess að viðeigandi eftirlit hafi verið fullnægt. Bréfið varð til þess að WEF hóf rannsókn á málinu.
Í athugasemd til Reuters segist stjórn WEF „taka þessar ásakanir alvarlega.“ WEF bendir á að ekkert sé sannað og því muni stofnunin bíða niðurstöðu rannsóknarinnar áður en WEF tjáir sig frekar um málið.
Talsmaður Schwab fjölskyldunnar vísar öllum ásökunum á bug og segir að Klaus Schwab ætli að höfða mál gegn þeim einstaklingi sem sendi nafnlausa bréfið og „öllum þeim sem dreifa þessum ósannindum.“
Kynferðisleg áreitni í höfuðbækistöðvum WEF
Árlegar ráðstefnur World Economic Forum í Davos í Sviss hafa undanfarin ár hlotið gagnrýni bæði frá vinstri og hægri og neikvæðar sögusagnir eru í gangi um innri stjórnarhætti samtakanna meðal annars í afstöðu karlpeningsins, ekki síst Klaus Schwabs sjálfs, til kvenna. WEF vinnur með lögmannsstofu að því að rannsaka vinnustaðamenningu samtakanna vegna ásakana um áreitni og mismunum en WEF neitar þeim ásökunum.