Samnytt var fyrst sænskra fjölmiðla til að afhjúpa um helgina að 26 ára gamall maður, sem grunaður er um að hafa myrt 25 ára gamla konu sem hvarf sunnan við Stokkhólm, er transvestíti/klæðaskiptingur og áður dæmdur barnaníðingur, sem núna gengur undir nafninu Vilma Andersson en því nafni halda sænsk yfirvöld leyndu enn sem komið er. Á þriðjudag var óskað eftir gæsluvarðhaldi yfir manninum vegna morðsins. Hann hefur áður hlotið styttri fangelsisdóma, meðal annars fyrir tilraun til mannráns á tíu ára gamalli stúlku.
25 ára gamla konan hafði verið úti með vinum á jóladagskvöld. Hún sást síðast á Rönninge-lestarstöðinni klukkan 01:30. Síðasta skráða merkið úr farsíma hennar barst klukkan 01:50.
Lögreglan handtók manninn laugardagskvöld klukkan 21:22 eftir tíu klukkustunda leit. Samkvæmt fjölmiðlum var transvestítinn að grafa niður líkamshluta konunnar, þegar hann var handtekinn og sagði hann sjálfur að þetta væru leifar konunnar sem saknað var. Enn fremur var sagt að maðurinn hafi játað aðild að morðinu. Saksóknarinn grunar hann bæði um morð og alvarlega líkamsárás, en mikilvægar upplýsingar um morðið eru enn óljósar. Vilma Andersson tengist glæpunum með DNA-greiningu.
Ekki er vitað nákvæmlega hvenær morðið átti sér stað en talið að glæpurinn hafi verið framinn einhvern tímann á milli 26. og 27. desember, annað hvort í Rönninge eða annars staðar í Stokkhólmi. Sagt er að morðinginn hafi flutt líkið i skóglendi marga kílómetra frá Rönninge.

Áður dæmdur fyrir tilraun til mannráns
46 ára gamall sænskur maður, skráður í Rönninge, var handtekinn grunaður um aðild að morðinu en búið er að láta hann lausan og taka burtu frá rannsókn málsins.
Ódæðismaðurinn sem er í gæsluvarðhaldi hefur áður verið dæmdur fyrir tilraun til mannráns á tíu ára gamalli stúlku sem var á leið heim úr skólanum. Samkvæmt dómnum hafði hann skipulagt glæpinn vandlega og útvegað hluti sem notaðir voru verknaðinn, sem átti sér stað um miðjan dag í einbýlishúsahverfi. Hann var þá talinn hafa verið nálægt því að ljúka við glæpinn.
Þegar lögreglan gerði húsleit á heimili hans fundust yfir 42.500 myndir af barnaklámi. Hann hafði einnig barnaklámmyndir og myndir af nöktum konulíkum og hafði leitað á netinu eftir lyfjum til að byrla stúlkum.
Hann var sakfelldur í héraðsdómi Solna fyrir tilraun til mannráns og alvarlegt barnaklám. Þrátt fyrir glæpina komst dómstólinn að þeirri niðurstöðu að tveggja ára og fjögurra mánaða fangelsisrefsing væri viðeigandi. Í samræmi við reglur um skilorðsbundna lausn var barnaníðingnum sleppt eftir um það bil ár og sjö mánuði í fangelsi.
