Hvað svo sem segja má um Rússana, þá verður ekki sagt að þeir séu húmorslausir. Sovét-ESB hefur fryst alla Evrópu og hangir á bláþræði Rússagrýlu og þriðju heimsstyrjaldarinnar. Og í stað kímni, þá þjást Evrópusambandsríkin af þunglyndi, volæði og eymd vegna hærri rafmagnsreikninga og stríðslána kynslóðir fram í tímann. Að ekki sé nú talað um fjölmenninguna með öllum hælisleitendum dansandi kringum jólatréð.
Sænski miðillinn Frelsisfréttir manar ritskoðun ESB með því að sýna nýjasta jólalagið á rússneska sjónvarpinu RT sem er bannað í ESB. Gert er grín að Rússagrýlunni sem hefur heltekið valdhafa til og með á litla Íslandi, þar sem Pútín er kennt um allt sem miður fer frá háum rafmagnsreikningum til innflytjendakreppu. Gervigreind er notuð til að sýna stjórnmálamenn og hversdagsvandamálin og barnakór syngur lagið sem sjá má hér að neðan þakka ber X og Elon Musk fyrir það:
“Power bills too high to pay? It’s all because of Putin – hey!”
“Migrants settled by your Christmas tree? It’s all because of Putin, see!”
Jólalagið æðir um allt á samfélagsmiðlum:
Everything Is Putin's Fault..! – The URSULA von der CORRUPT Show
— Ignorance, the root and stem of all evil (@ivan_8848) December 23, 2025
Sing with me.
Migrants settled by your Christmas tree?
It's all because of Putin, see!
Power bills too high to pay? It's all because of Putin – hey!pic.twitter.com/vmBGQ7ygJF
