Lífið er sterkara en dauðinn – Ljósið sigrar myrkrið – Eftir vetur kemur vor
Jólin eru stórkostleg hátíð. Við fögnum fæðingu frelsarans Jesú Krists sem með komu sinni breytti ásýnd manna til lífsins og færði okkur von lífsins fram yfir dauðann. Möguleikinn til að skapa nýtt líf er kraftaverk og trygging framhalds mannkyns á vorri jörð. Sameining manns og konu sem verða foreldrar og sköpun hins nýja lífs er ómælanleg gleði og nýsköpun sögunnar aftur og aftur. Þetta er Guðs verk sem blæs heilögum anda í vit okkar til að mæta öllu því sem hugsast getur, bæði gott og illt og hjálpar okkur að þroskast.
Barnið er einn stærsti þroskavaldur fullorðinna og leyfir sköpunarmætti barnsins að lifa áfram í sál þess fullorðna. Kynin eru tvö: Maður og kona og í sameiningu skapa þau nýtt líf, barnið. Móðir, faðir, sonur, dóttir. – fjölskyldan er undirstaða mannlífsins, trygging fyrir öryggi og það fley sem siglir gegnum stórsjó lífsins. Fjölskyldan er það mikilvægasta fyrir hjarta og sál og boðskapur jólanna er vegarnestið og inntakið í þeim kristnu gildum sem þýða allt fyrir kærleiksrík samskipti í þessum heimi. Þessu fær hið illa aldrei breytt.
Kynjafræði andskotans, þar sem verið er að troða óteljandi kynjum upp á fólk er dæmd til dauða. Hún færir ekkert með sér annað en örvæntingu og ótta, limlesti og lífsama og er framhald af fyrri líffræðilegum tilraunum myrkrahöfðingjans sem allar eru ömurlegt kák í öfund yfir sköpunarverki Guðs. Glerárkirkjur munu brotna og biskup trans er hvorki andi lífs né hjartakrans. Vókaðar krumlur dauðans stöðva ekki kristni og Charlie Kirk lifir áfram eins og Jesús.
Sú úrkynjun sem átt hefur sér stað á Vesturlöndum undanfarna áratugi og hefur leitt heiminn á barm þriðju heimsstyrjaldarinnar er dæmigerð fyrir endurteknar syndir mannsins. Dansinn kringum gullkálfinn byrgir alla sýn og ýtir Guði til hliðar. Í ríki Mammons er Guði, Jesú og heilögum anda útrýmt og núna gjalla herlúðrar myrkurs og haturs, sundrungar, vesældóms og dauða yfir heiminn.
Við skulum standa vörð um hin kristnu gildi sem hart er sótt að um þessar mundir. Höldum heilög jól í hjarta og sál, fögnum með fjölskyldu vinum og vandamönnum. Þéttum raðirnar sem kristið fólk og aðstoðum þá sem minna mega sín. Jesús finnst í hverju barni og postularnir tólf breiða út fagnaðarerindið: Lífið sigrar dauðann.
Þjóðólfur óskar lesendum nær og fjær Gleðilegra jóla og farsæls komandi árs!
