Veistu ekki hvað þú átt að gefa þeim sem allt eiga í jólagjöf? Gefðu þeim áskrift að Tilfallandi hlaðvarpi vinsælasta bloggara þjóðarinnar, Páls Vilhjálmssonar.
Tilfallandi hlaðvarp er, eins og Páll segir, “djúpmiðill bloggsins, segir það sem ekki er skrifað.”
Úr Tilfallandi hlaðvarpi:
Fyrsti þáttur hlaðvarpsins “Þegar skipstjórinn hringdi” var fluttur 15. október – og lesendur Tilfallandi bloggs vita án efa um hvaða skipstjóra ræðir.
Páll kemur víða við sögu – eftirfarandi eru lýsingar á aðeins nokkrum þáttum:
31. október: Áfengi, trans og sérviska. Aðeins Páll Vilhjálmsson gæti pakkað þessu þrennu í rökrétta umfjöllun.
5. nóvember: Fréttir sem ekki þola umfjöllun.
9. nóvember: Frumflutningur fyrsta kafla á óbirtri skáldsögu Páls, Byrlun.
12. nóvember: Byrlun, 2. kafli og starfslok Tilfallandi.
30. nóvember: Byrlun, 3. kafli. Glæpur söðlaður á þjófnað.
14. desember: Byrlun, 4. kafli.
22. nóvember: „Lögmaður Blaðamannafélags Íslands kom við sögu þegar Tilfallandi lét af störfum sem framhaldsskólakennari eftir 16 ár í starfi“ (prúðmannleg lýsing Páls á þættinum – því Páll er maður dagfarsprúður) en Þjóðólfur myndi segja „bolað úr starfi af ofstækisfullum vókistum.”
Tilfallandi hlaðvarp fæst í áskrift á Patreon: Tilfallandi hlaðvarp.
