Frökk veggspjaldaherferð hæðist að gullklósettamenningu ESB og Zelensky

Veggspjöldunum sló niður eins og sprengju í Búdapest. Myndin sýnir Zelensky, von der Leyen og Péter Magyar sturta peningum ofan í gullklósett fjármálafurstanna í Úkraínu. ESB er sakað um að ræna ungverska skattgreiðendur. Herferðin breiðist út eins og eldur í sinu fyrir komandi þingkosningar í Ungverjalandi. Gjáin við ESB breikkar og dýpkar.

Í Ungverjalandi hefur áberandi veggspjaldaherferð hafist með skilaboðunum:

„Þeir hækka skatta ykkar og sturta þeim í gullklósett í Úkraínu.“

Mynd sýnir Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar ESB, Volodymyr Zelensky, forseta Úkraínu og Péter Magyar, leiðtoga Tisza-flokksins. Þessi þrjú skötuhjú eru sýnd sem hópur útrásarskattræningja ESB sem stelur peningum af elmenningi aðildarríkjanna svo svindlararnir í Úkraínu geti gert þarfir sínar í klósett úr skíra gulli.

    Fólk á skilið að fá að vita

    Herferðin er frumkvæði Þjóðar-andspyrnuhreyfingarinnar. Gábor Szűcs, meðstofnandi flokksins, sagði á blaðamannafundi í Nyíregyháza að markmiðið væri að upplýsa kjósendur um efnahagslegar afleiðingar fyrirhugaðrar stefnu Tisza-flokksins:

    „Flokkurinn felur áætlanir sínar, vegna þess að hann tapar kosningunum ef fólkið veit. Þetta snýst ekki um stríðið í Úkraínu – það snýst um að fjármagna gullli slegin baðherbergi fjármálafursta.“

    Samkvæmt andspyrnuhreyfingunni felur núverandi aðhaldspakki í sér hækkaðan tekjuskatt, minni stuðning við barnafjölskyldur og ný gjöld á smáfyrirtæki. Samtals er skattahækkunin talin nema 5.000 milljörðum forinta sem verður varið utan landamæra Ungverjalands samkvæmt veggspjaldaherferðinni.

    Veggspjöldin úti um allt land

    Veggspjöldin eru sett upp bæði í höfuðborginni og á landsbyggðinni og skilaboðin dreifast hratt á samfélagsmiðlum. Í einni færslu er kosningabaráttunni lýst með orðunum:

    „Orbán hefur veggfóðrað Búdapest með kvittunum: von der Leyen og Zelensky dæla út ungverskum peningum og hlæja að þér.“

    Balázs Orbán, stjórnmálaráðgjafi í innsta hring forsætisráðherrans, sagði um kosningabaráttuna á X:

    „Ungverjaland velur aðra leið: Verndar skattgreiðendur, fullveldið og raunverulega þjóðarhagsmuni.“

    Kosningabaráttan afhjúpar mótsetningarnar fyrir kosningarnar. Veggspjöldin varpa ljósi á vaxandi óánægju með stjórnmálamenn sem taldir eru setja hagsmuni ESB ofar eigin þjóð. Samkvæmt talsmönnum herferðarinnar er lausnin augljós: Skattpeningar eiga að vera til notkunar innanlands, ákvarðanir eiga að vera teknar í Búdapest en ekki í Brussel. Og þeir sem fylgja í taumi glóbalistanna skulu dregnir til ábyrgðar í kjörklefanum.

    Fara efst á síðu