Evru-glóbalistarnir eru í uppnámi vegna stuðnings Donald Trumps Bandaríkjaforseta við fullveldissinna í Evrópu. Trump tekur þátt í baráttunni um sál Evrópu og glóbalíska almættið skelfur.
Ókjörnir háttsettir embættismenn ESB eins og Antonio Costa forseti leiðtogaráðs ESB, toppdiplómatinn Kaja Kallas og Ursula von der Leyen, framkvæmdastjóri ESB hafa opinberlega gagnrýnt hina nýju þjóðaröryggisstefnu Bandaríkjanna og áhrif hennar á Evrópu.
Í þjóðaröryggisskjalinu og í viðtölum hefur Trump kerfisbundið hafnað Evru-glóbalistunum og lýst yfir stuðningi við fullveldisflokka um alla Evrópu. Í sumum greinum er gefið í skyn að Bandaríkin reyni að „aðskilja“ Austurríki, Pólland, Ungverjaland og Ítalíu frá ESB.
Hinn „valdamikli“ framkvæmdastjóri ESB, Ursula van der Leyen, steig því fram á sviðið til að verja „evrópska lýðræðið.“
Evru-glóbalistar eins og von der Leyen tala sitt eigið tungumál, þar sem „lýðræði“ er það sama og vinstri frjálshyggju glóbalismi, þar sem allir sem eru hægra megin við Che Guevara eru skilgreindir sem „öfgahægri“ – fyrir utan uppáhalds hermenn þeirra, hina raunverulegu nazista Úkraínu.
„Donald Trump á ekki að blanda sér í evrópska lýðræðið“ sagði Ursula von der Leyen á fimmtudag, nokkrum dögum eftir að Bandaríkjaforseti gagnrýndi slappleika ESB.
„Það er ekki okkar, þegar kemur að kosningum, að ákveða hver verður leiðtogi landsins, heldur fólksins í viðkomandi landi. Það er sjálfsákvörðunarréttur kjósenda og hann verður að vernda,“ sagði forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í viðtali Politico.
„Enginn utanaðkomandi á að skipta sér af þessu, það er engin spurning um það“ bætti formaður framkvæmdastjórnarinnar við í svari við spurningu um þjóðaröryggisstefnu Bandaríkjanna, sem var birt í síðustu viku og olli uppnámi í Evrópu.“
Í grein Politico er gagnrýnt að Trump afhjúpaði pólitíska ritskoðun ESB eða svo kallaða „viðleitni Evrópu til að hemja öfgahægriflokka.“ Megin fjölmiðlar segja fullveldishreyfingar vera „öfgahægri“ og að valdakerfinu standi ógn af þeim. Með því er verið að glæpavæða íhaldsöfl, hvort sem það er í Þýskalandi, Frakklandi eða Bretlandi. Það er ekki eins og verið sé að tala um hóp af jaðarsettum brjálæðingum – íhaldsstefna fullveldishreyfinganna er í fullu samræmi við stefnu almennings í Evrópu.

Von der Leyen fyllir Evrópu með innflytjendum þriðja heimsins og er að drepa evrópskan iðnað með „grænu dellunni.“ Fullveldissinnar með Trump í fararbroddi eru komnir inn í kastala von der Leyen. Ursula von der Leyen má passa sig – ekki er víst að það dugi að hringja í Soros núna!
