Netmiðillinn Samnytt greinir frá því að Íslendingurinn Guðmundur Mogensen, 41 árs, hafi hlotið lífstíðarfangelsi fyrir morðið á jafnaðarkonunni Kristinu Bah í Akalla. Tveir samsekir fengu langa fangelsisdóma fyrir að hafa aðstoðað hann á degi morðsins. Önnur kona var einnig á lista yfir fyrirhuguð fórnarlömb.
22. október í fyrra var Kristina Bah, 63 ára, skotin til bana í íbúð sinni við Sibeliusgången í Akalla. Hún fannst liggjandi dáin á gólfinu í forstofunni mörgum klukkustundum seinna. Kristina Bah var virk jafnaðarkona og tók þátt í starfi kirkjunnar í Spånga-Kista. Hún átti fullorðinn son, sem er þekktur innan glæpahópsins híenur Husbys. Hún var myrt í uppgjöri glæpahópa, þar sem ofbeldi er beint að ættingjum keppinauta sem ekki næst til að granda.
Guðmundur Mogensen kallaði sig Johan Svensson í yfirheyrslu lögreglu, játaði glæpinn morðið að lokum og sagðist iðrast gjörða sinna:
„Ég hef drepið manneskju, móður. Það er ófyrirgefanlegt. Það eru engar afsakanir fyrir þessu.”
Pöntuð aftaka
Samkvæmt dómnum í héraðsdómi Solna hafði Mogensen samband við glæpamenn í gegnum dulkóðaða appið Signal vikum fyrir morðið. Honum var boðin greiðsla fyrir að framkvæma ýmis verkefni – að „sprengja eða skjóta á hurðar“ – og lokkaðist af skjótfengnum peningum.
Mogensen lagði af stað í „morðferð“ um Stokkhólm ásamt 52 ára Robert Ingesson, sem starfaði sem bílstjóri og vopnaflutningamaður. Með í för var listi með sex heimilisföngum fólks sem tengist glæpahópum.
Á fyrsta heimilisfanginu í Västerort var konan varkár og opnaði ekki dyrnar sem bjargaði lífi hennar. Önnur konan á listanum – Kristina Bah – var ekki eins heppin. Klukkan 15:25 var þremur skotum hleypt af í gangi heimilis hennar. Stuttu síðar ók rauði flóttabíllinn á brott. Nokkrum klukkustundum síðar, um klukkan 19, fannst líkið af nágranna sem hafði tekið eftir því að dyrnar voru opnar.
Sönnunargögnin
Snaran þrengdist fljótt að morðingjanum. Mogensen hafði notað farsíma við ódæðið sem skildi eftir spor í kerfinu. Eftirlitsmyndir sýndu hann með símann í hendinni á McDonald’s á Södermalm kvöldið fyrir morðið.
DNA á skothylki og framburður vitna á svæðinu styrktu enn frekar sönnunargögnin. Þegar Mogensen játaði loksins í mars á þessu ári lýsti hann glæpnum sem einhverju sem hann „gæti ekki skilið.“ Hann hélt því fram við yfirheyrslu að morðið „væri að éta hann upp að innan.“
Í dómi sínum komst héraðsdómstóllinn í Solna að þeirri niðurstöðu að Guðmundur Mogensen hefði skipulagt og framkvæmt morðið fyrir hönd glæpasamtaka. Hann var dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morðið á Kristinu Bah og tilraun til morðs á annarri konu sama dag. Tveir aðstoðarmenn Guðmundar, þau Maja Pern, 31 árs, var dæmd í 11 ára og 10 mánaða fangelsi fyrir aðstoð við morð og tilraun til morðs og Robert Ingesson, 52 ára, var dæmdur í 13 ára og 10 mánaða fangelsi fyrir sömu brot.
