ÍRAN ER EKKI ÍSLAND

Á Íslandi er rætt um Íran eins og það væri lýðræðisríki sem það er að sjálfsögðu ekki. Ógnarstjórn ofsaíslamista sem nærir hryðjuverkasnáka í barmi sér, fremur fjöldamorð á eigin íbúum, keppist um að koma sér upp kjarnorkuvopnum sem hægt er að skjóta á Ísrael og öll önnur ríki í Mið-Austurlöndum og alla Evrópu líka, er óvinur allra lýðræðissinna. Trump er kallaður öllum illum nöfnum fyrir að bjarga bæði Bandaríkjunum, Ísrael og samtímis bandamönnum í Evrópu undan nýrri Norður-Kóreu í Mið-Austurlöndum í stað þess að vera þakkað fyrir og veitt öll hugsanleg aðstoð. 

Svo kallaðir bandamenn Bandaríkjamanna hafa sýnt sitt rétta andlit með því að neita að lána umsamin afnot af flugvöllum. Bandaríkin svara fyrir sig og ræða um að skera herafla sinn niður um 80% í Evrópu sem hefur haldið friði á meginlandinu í 80 ár. 

Barnaskapurinn er mikill, þegar öllu er snúið upp á skaft og jafnvel fara að rífa kjaft við þá sem hafa hjálpað Íslendingum mest frá stofnun lýðveldisins. Ríkisstjórn Íslands hefur í ESB blindni stórskemmt samband þjóðarinnar við Bandaríkjamenn. Þegar sumir heyra orðið Trump breytist heili þeirra í prump og engin sjáanleg leið að meðtaka staðreyndir úr raunheimi. 

DJ Vance varaforseti Bandaríkjanna er í heimsókn í Ungverjalandi og segir afskipti ESB af innanríkiskosningum Ungverjalands vera það versta sem hann hefur séð, heyrt eða lesið um. Það er forboði fyrir falskosningarnar á Íslandi í haust þar reynt er að plata þjóðina til að kjósa um eitthvað annað en inngöngu í ESB. Vonandi sendir Ísland frá sér svo skýrt og sterkt nei að hrikti í grundvelli búrókratabygginganna í Brussel. Nýjasta Gallup-könnun Viðskiptablaðsins gefur ákveðna von með 54% á móti ESB.    

Kvenréttindafélagið hefur eyðilagt mannréttindabaráttu kvenna með því að gera trans hugmyndafræðina að helsta baráttumáli kvenna. Fjarri er því að konur séu almennt samþykkar því að limlesta eigi börn og / eða fylla með kynjarugli frá unga aldri. Væri ekki nær að konur fengju fleiri bíla og bílastæði svo þær þyrftu ekki að eyða tímanum í að festast með barnavagninn í næsta skafli?

Konur á Íslandi mega muna fífil sinn fegri áður en körlum var hleypt berum inn í sturtuklefa þeirra af því að þeir þykjast vera konur!