Innlendir hryðjuverkamenn standa fyrir skipulögðu ofbeldi í Minnesota – hafa aðgang að leyniupplýsingum lögreglunnar og fá fjármagn frá Kanada

Rogan O’Handley t.h. á mynd lýsir víðtækum samtökum vinstri manna í Minnesota gegn stjórnvöldum. (skjáskot X)

Rogan O’Handley, einnig þekktur sem DC Draino á samfélagsmiðlum, var í viðtali hjá Steve Bannon í Stríðsherberginu á mánudaginn til að ræða mjög skipulögð, áframhaldandi mótmæli öfgavinstrihreyfingarinnar í Minneapolis. Hann segir að um innlenda hryðjuverkastarfsemi sé að ræða.

Rogan sagði að óeirðarseggirnir hafi aðgang að gagnagrunni með bílnúmerum ríkisins. Mótmælendurnir fá einnig peninga frá Kanada og þeir hótuðu að drepa uppljóstrarann James O’Keefe, Nick Shirley og aðra íhaldssama blaðamenn. Rogan segir að mótmælendurnir hafi aðgang að leynigögnum, þjálfunarhandbókum, efnahagsskjölum og að háttsettir stjórnmálamenn í Minnesota séu meðlimir hópsins.

Rogan O’Handley: Þetta er innlend hryðjuverkastarfsemi og skipulögð minni háttar uppreisn. Við höfum fylgst með þessu og erum undrandi yfir því, hvernig þetta fólk varar alltaf við því, hvar ICE eru staddir sem nota mismunandi leynilega bíla. Lögregla útlendingaeftirlitsins reyna að láta ekki bera mikið á sér en af einhverri ástæðu, þá eru þeir stöðugt uppgötvaðir.

James O’Keefe var rétt í þessu þarna uppi í Minneapolis og lífi hans var ógnað. Hann fékk sms frá símanúmeri þar sem stóð:

„Við vitum að þú ert á bíl með þessu bílnúmeri frá Flórída. Ef þú verður ekki farinn innan klukkustundar, þá ertu dauður.“

Þetta er brjálæði. Þetta er ekki bara hryðjuverk, heldur sýnir það að þeir hafa aðgang að skráningarnúmeraauðkennum. Þeir hafa aðgang að farsímum fólks. Þeir hafa starfsmenn innan lögreglunnar eða ríkisstjórnarinnar sem veita þeim þessar leynilegu upplýsingar, örugg gögn.

Það sýnir að þetta er uppreisnaraðgerð að ofan. Við sáum í gær, þetta var út um allt á X, nokkrir frábærir reikningar eins og Zero Hour og Cam Higby sýndu spjall um merkin. Það eru þúsund manns í þessu spjalli á hverjum degi. Þeir eru með skipulögð emoji-tákn sem þýða ákveðna hluti. Þeir eru með samskiptareglur, þeir eru með þjálfunarhandbækur og svo eru þeir líka með gögn yfir peningamálin.

Það var frábært tíst frá DATA Republican held ég sem sýndi að erlend fjármögnun kemur frá Kanada. Frá manni sem heitir Unchafft og samtökum hans í Kanada. Svo þessar aðgerðir eru fjármagnaðar frá útlöndum. Þátttaka á ríkisstigi. Varafylkisstjórinn var þarna. Fjölmargir fulltrúar ríkisins og borgarfulltrúar voru í þessu spjalli.

Þetta er uppreisn, Steve. Ef þetta leiðir til ofbeldis, til dauða fólks, þá er það uppreisn, það er uppreisn, þetta eru glæpamenn, morðingjar, þetta er samsæri. Það eru fjölmargar ákærur gegn starfsmönnum Tim Walsh og kosningastarfsmönnum sem tengjast málinu.

Það kemur ekki á óvart að þeir eru að gera þetta, eftir að svikavélin þeirra fannst. Þetta er hrein afvegaleiðing. Og Trump forseti verður að halda áfram sókninni og taka þetta niður, því ef hann gerir það ekki, og ég held að hann muni gera það, en ef hann gerir það ekki, þá mun þetta breiðast út til annarra borga.

Smelltu á spilarann til að sjá hluta þáttarins hér að neðan:

Hér má heyra James O’Keefe lýsa ástandinu:

Fara efst á síðu