Evrópubúar eru svartsýnir út af ástandinu í heiminum, Evrópu og heimalöndum þeirra samkvæmt nýrri könnun samskiptafyrirtækisins FGS Global. Könnunin náði til yfir 11.000 manns í 23 ESB-löndum í nóvember sl. Næstum tveir þriðju hlutar eða 63% segja að „bestu árin séu að baki“ og 77% telja að lífið „verði erfiðara fyrir næstu kynslóð.“ Ástandið er sérstaklega dökkt í Vestur- og Mið-Evrópu.
76% segja að lýðræðið sé á undanhaldi í landi þeirra. Á sama tíma hefur almenningur miklar áhyggjur af getu stjórnvalda til að takast á við Úkraínustríðið, efnahagslega óvissu og vaxandi núning við Washington. Craig Oliver, aðstoðarframkvæmdastjóri alþjóðlegrar stefnumótunar hjá FGS Global, sem áður starfaði sem samskiptaráðgjafi fv.forsætisráðherra Bretlands, David Cameron, segir það ljóst „að mjög mikil svartsýni ráði ríkjum.“
79% Frakka segja Frakkland á rangri braut
Meirihlutinn í nánast öllum löndunum sem tóku þátt í könnuninn telur að landið þeirra sé á rangri braut. Undantekningar eru Litháen, Pólland og Danmörk. Í Frakklandi telja 79% landið vera á rangri leið. 65% að meðaltali í ESB telja landið sitt vera á rangri leið.

Um helmingur þátttakenda sögðu að stjórnmálakerfi landsins „hefði brugðist fólkinu og gera þyrfti grundvallarbreytingar.“ 71% þátttakenda voru sammála því að lönd þeirra ættu að vera skýrari í þjóðarhagsmunum sínum, jafnvel þótt það myndi skapa núning við aðrar þjóðir.
69% sögðust vera svartsýn á áhrif Trumps á heimshagkerfið, 64% voru svartsýn á frið og öryggi og afkomu eigins lands á komandi ári.
