Um alla Evrópu er heimamönnum ýtt til hliðar, þegar hælisleitendur taka með sér átök Mið-Austurlanda út á götur borga í Evrópu. Palestínsk og sýrlensk ringulreið eru orðin hversdagsleg sjón í evrópskum borgum og núna á jólamörkuðum. Um helgina söfnuðust Sýrlendingar sem hafa flust til Svíþjóðar saman til að fagna afmæli hins fallna leiðtoga Bashar al-Assad á Meðborgartorginu í Stokkhólmi. Íslenska valkyrjustjórnin og borgarstjórn Reykjavíkur gera sitt til að verða ekki minni eftirbátar samanber palestínsku tjaldbúðirnar á Austurvelli.
Skipuleggjendur fagnaðarmótmælanna segjast vera að fagna framtíðarsýn um Sýrland án Assad „sem er upphaf nýs kafla í sögu lands okkar.“ Assad var steypt af stóli af heilagastríðsmönnum sem tóku völdin og landinu er núna stjórnað af fyrrverandi leiðtoga al-Kaída, Ahmed al-Sharaa, sem var eftirlýstur af Bandaríkjunum þar til í desember síðastliðnum. Í áróðri fundarmanna segir m.a.:
- Við fögnum framtíðarsýninni um Sýrland án Assad, sem er upphaf nýs kafla í sögu lands okkar.
- Við söfnumst saman til að tjá samstöðu okkar, gleði okkar og sameiginlega skuldbindingu okkar til að byggja upp frjálst og réttlátt Sýrland.
- Við söfnumst einnig saman til að minnast allra þeirra sem fórnuðu lífi sínu, frelsi sínu og öryggi í baráttunni gegn kúgun.
Sjáumst á Medborgarplatsen 7. desember, klukkan 14:00.
Sýrlenskir flóttamenn í Svíþjóð breyttu Stokkhólmi í Damaskus. Svíþjóð hefur ekkert með innanlandsmál í Sýrlandi að gera frekar en Ísland en hælisleitendur eru á öðru máli.
Svipaðir atburðir út um alla Evrópu
Svipaðar atburðir sáust einnig annars staðar í Evrópu um helgina. Um 3.000 Sýrlendingar söfnuðust saman á Alexanderplatz í Berlín á sunnudag til að fagna afmæli stjórnarskipta í heimalandi sínu, að því er Berliner Zeitung greinir frá.
Hátíðahöldin fóru fram mitt á fjölsóttum jólamarkaði þar sem gestir þurftu að þola ringulreið mótmælenda í stað þess að geta notið undirbúnings jólanna:
Þrátt fyrir að Assad sé farinn frá völdum velja margir Sýrlendingar sem flúðu til Evrópu að vera áfram í Evrópu. Myndband frá Alexanderstorgi í Berlín gæti líka verið frá Damaskus:
Algjör ringulreið í Utrecht Hollandi:
Hér er myndband frá London, þar sem sýrlendingar fagna með fánum sínum meðal Breta í jólagjafakaupum:
