Zelensky og Merz kyssast fyrir utan Downingstreet 10 í gær. Starmer og Macron horfa á.
Ekki nóg með að landráðsákærður utanríkisráðherra Íslands hefur logið óheflað að landsmönnum um meinta persónulega þátttöku í þróun áætlunar ESB um að innlima Ísland í sambandið, heldur er hún beinlínis að skera á öll tengsl við Bandaríkjastjórn, þrátt fyrir falskar yfirlýsingar um annað. Víglínan ætti að vera öllum ljós í dag eftir fund Zelenskýs, Starmers, Macron og Merz í Downingstreet 10 í gær, þar sem friðartillögu Bandaríkjanna var enn á ný hafnað.
Zelenský sagði eftir fundinn að eftirgjöf á landsvæðum í austurhluta Úkraínu til Rússlands bryti gegn stjórnarskrá Úkraínu og kæmi ekki til greina. Þar með er stefna ESB og Starmers endurtekin: Sækja verður svæðin frá Rússlandi með hervaldi sem jafngildir stríðsyfirlýsingu um þriðju heimsstyrjöldina. Guð blessi Evrópubúa, Guð blessi Ísland og hindri valkyrjustjórnina frá því að færa landið í hendur hins nýja fjórða ríkis meginlandsins.
Það er ekki hagur Úkraínumanna að standa í þessu stríði sem var þvingað upp á þá m.a. af vopnasölumönnum Bandaríkjanna eftir hallarbyltingu CIA, Soros og ESB í Kænugarði 2014. Eftir það hófst þjóðarmorð á Rússum í austurhluta Úkraínu sem voru 80-90% íbúa svæðisins. Rússar komu fólkinu til hjálpar og haldnar voru kosningar þar sem meirihluti íbúanna vildi sameinast Rússlandi. Að stækka landsvæði Rússlands var ekki málið, heldur að bjarga lífi Rússa. Vopnasalar sem græða á slátrun mannfólks ásamt ESB og CIA samþykktu ekki þessar kosningar, því það þurfti að græða meiri peninga á stríðinu. Zelenský er keyptur leikari sem er nákvæmlega sama um dauða landsmanna sinna. Mammon er guð sem birtist í allri spillingu í kring um Zelenský.
Allt ber að sama brunni: Nýr varnarsamningur Íslands við Þýskaland, sem er á leiðinni að nýju að verða stærsta herveldi Evrópu, ákall Davíðs Stefánssonar, formanns Varðbergs um að hraða þurfi varnarsamningi Íslands við ESB, ný herstöð Nató í Rovanemi í Finnlandi í umsjón Svía með þátttöku Íslendinga eru bara fá ný dæmi um innlimunarferli Íslands undir áhrifasvæði ESB. Áróðursmenn á launum hjá George Soros eins og Carl Bildt fv. forsætisráðherra Svíþjóðar kallar Trump öfgasinna og segir friðartillögur hans fáránlegar. Eflaust tekur Þorgerður Katrín undir það, hún hefur falska tungu gagnvart Bandaríkjunum.
Sannleikurinn er sá að þetta hrokafulla fólk þolir engar umræður um vankantana hjá sjálfu sér, þau eru upp og yfir aðra hafna. Stríð er betra en friður, ritskoðun betra en málfrelsi og fjórða alræðisríki Evrópu betra en sjálfstæðar þjóðir sem vinna saman í friði.
Andi Adolfs Hitlers er á sveimi yfir vötnunum. Íslendingar verða að ákveða sig hvoru megin þeir ætla að vera í þessum vaxandi heimsátökum:
Viljum við frelsi og frið og stöndum við með Bandaríkjamönnum eða viljum við helvíti á jörðu í þriðju kjarnorkuknúinni heimsstyrjöld? Ætti ekki að vera svo erfitt val ……
