Í nýjasta fréttabréfi Heimssýnar, hreyfingar sjálfstæðissinna í Evrópumálum, segir formaður Heimssýnar að framundan sé barátta fyrir fullveldi landsins.
Í bréfinu segir:
„Heimssýn hefur þegar hafist handa við að kynna mótrökin gegn aðild. Vefsíðan var endurgerð, talsmenn okkar hafa skrifað fjölda greina í blöð, skrifað umsagnir við þingmál, mætt í viðtalsþætti og hlaðvörp og skrifað daglega pistla á blogg Heimssýnar og samfélagsmiðlana. Í haust sem leið voru tveir vel heppnaðir opnir fundir í Iðnó.
Áherslan hefur verið á að koma sjónarmiðum fullveldis að í sem flestum fjölmiðlum og sem oftast. Allt hefur þetta verið unnið af sjálfboðaliðum og verður svo áfram. En við teljum mikilvægt að ráða starfsmann til félagsins til að halda utan um starf sjálfboðaliða, áætlanir, fjáröflun og kynningarstarf í aðdraganda boðaðar þjóðaratkvæðagreiðslu. Til þess þurfum að afla fjár og værum mjög þakklát ef þú vildir styrkja starfið með því að millifæra til dæmis 3.000 krónur á reikning samtakanna ef vel stendur á. Þökkum allan stuðning.
Evran leysir ekki vandann
Aðildarsinnar halda því stundum fram að evran muni leysi vanda unga fólksins okkar sem á í erfiðleikum með að eignast húsnæði. Sagan er sú að fái Ísland evruna þá muni verðbólga og vextir lækka. En þetta er einmitt öfugt, því samkvæmt skilyrðum evrusvæðisins fær ekkert ríki að taka upp evru fyrr en það hefur sjálft náð að lækka verðbólgu og vexti hjá sér þannig að þeir séu ekki hærri en í þeim þrem evruríkjum sem hafa lægstu verðbólguna og vextina.
Þegar Ísland hefur náð svo góðum tökum á verðbólgu og vöxtum á eigin spýtur er auðvitað engin ástæða til að taka upp evru, enda fylgja henni ókostir. Þess vegna hafa Danir, Svíar, Pólverjar, Tékkar og fleiri þjóðir innan ESB ekki sóst eftir því að taka upp evru.”
Bankaupplýsingar Heimssýnar:
Kennitala : 680602-5810
Bankareikningur: 0101 26 005810
| Meira efni á vefnum: www.heimssýn.is |
