Stefán Einar Stefánsson stjórnarmaður umræðuþáttarins Spursmálin hjá mbl.is hvetur Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra að mæta í viðtal hjá sér til að ræða boðaða atkvæðagreiðslu um inngöngu Íslands í ESB.
Stefán Stefánsson hefur sent frá sér eftirfarandi hvatningu um umræðu um Evrópusambandsmálin (sjá myndskeið að neðan). Hann segir:
„Ég kalla eftir því að forsætisráðherrann og utanríkisráðherrann Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sem báðar hafa neitað því að koma hér í þennan þátt til að ræða þessi mikilsverðu mál, komi nú og sýni á spilin. Það skiptir máli að lýðræðisleg umræða eigi sér stað, ekki aðeins á vettvangi ríkisútvarpsins, þar sem þær geta sífellt búist við þægilegum spurningum, sem auðvelt er að svara og engin eftirfylgd eftir, þegar svarið hefur verið veitt.”
Þjóðólfur tekur undir þessa hvatningu Stefáns. Það er mikill aulaskapur hjá þessum háu embættismönnum þjóðarinnar að neita að koma í viðtal hjá Stefáni Einari sem hefur mikla reynslu og þekkingu í blaðamannastörfum og er mjög kurteis og vandur að virðingu – bæði sinnar eigin sem og annarra. Stefán er alvöru fjölmiðlamaður sem spyr óþægilegra spurninga og ræðir málefni með rökum, bæði með og á móti. Allur sá fjöldi viðmælenda sem Stefán hefur rætt við gegnum árin eru góð meðmæli með hæfni hans og atvinnumennsku.
Það sama verður ekki sagt um móðguðu prímadonnurnar sem bara vilja fá drottningarviðtöl og myndir af sér á forsíðum Vogue blaða Evrópusambandsins. Það er að segja hallelúja aðdáendaviðtöl en engar málefnalegar umræður. Skömmin er þeirra. Þær vita að þær hafa engin málefnaleg rök og þess vegna reyna þær að kenna öllu öðru um og þora ekki að koma í þáttinn.