Fyrsti mánuðurinn án dauðlegra skotárása – í átta ár

Janúar 2026 var fyrsti mánuðurinn í næstum átta ár án dauðlegra skotárása í Svíþjóð. Á sama tíma sýnir tölfræði lögreglunnar fyrir árið 2025 að byssuofbeldið minnkar en sprengjuárásir aukast hratt.

Enginn var skotinn til bana í Svíþjóð í janúar samkvæmt samantekt SVT. Tölfræði lögreglunnar er ekki komin fyrir janúar í ár en búist er við að lögreglan staðfesti samantekt sjónvarpsins um að í fyrsta skipti síðan vorið 2018 líður heill mánuður án dauðlegra skotárása. Síðast gerðist það í mars 2018.

Tölfræði lögreglunnar fyrir árið 2025 sýnir að samtals áttu sér stað 158 skotárásir í Svíþjóð. 46 manns létust og 44 særðust. Þetta er mikil fækkun miðað við árið 2022, þegar 391 skotárásir voru skráðar. Tölurnar fyrir árið 2025 innihalda einnig fjöldaskotárásina á Campus Risbergska í Örebro í febrúar. Johan Olsson, yfirmaður Noa segir:

„Lögreglan hefur unnið markvisst í nokkur ár að því að draga úr banvænu ofbeldi í Svíþjóð og það hefur skilað árangri. Margir hafa verið handteknir og ákærðir bæði í Svíþjóð og erlendis og þetta hefur haft áhrif á getu glæpahópa til að fremja banvænt ofbeldi.“

Þó að skotárásum hafi fækkað hefur sprengingum fjölgað verulega. Árið 2025 urðu 189 sprengingar, samanborið við 136 árið áður. Hins vegar hægðist aðeins á sprengjuárásum á síðustu þremur mánuðum ársins.

Til vinstri sést fjöldi skotárása sem fer mjög fækkandi. Til hægri er rauða súlan fjöldi myrtra árlega og þar er svipaður fjöldi en fjöldi særðra hefur minnkað mikið.

Lögreglan sér nokkrar mögulegar skýringar á þróuninni. Auðvelt hefur verið að útvega handsprengjur, getan til að fremja dauðlegar skotárásir hefur minnkað og ráðning ungra glæpamanna hefur haldið áfram í miklum mæli. Samkvæmt lögreglunni eiga yngri gerendur oft auðveldara með að ráðast á föst skotmörk eins og heimili og húsnæði heldur en að nota skotvopn.

Fjöldi tilkynninga um undirbúning fyrir sprengjuárásir á almannafæri jukust einnig á árinu. Alls voru 240 slík mál skráð, sem er meira en fjöldi sprengjuárása. Lögreglan segir einnig að fleiri handsprengjur hafi verið gerðar upptækar en voru sprengdar. Johan Olsson segir:

„Þetta sýnir að við erum komin fyrr í atburðarásinni og erum að takast á við undirbúningsstig sprenginga. Á sama tíma vinnum við hörðum höndum að fyrirbyggjandi vinnu, þar á meðal með sprengjufyrirtækjum, en einnig að því að hafa áhrif á smyglleiðir og innflutning sprengiefna.“

Undir lok árs 2025 sá lögreglan einnig jákvæða þróun þar sem fleiri foreldrar höfðu samband við yfirvöld með áhyggjur af börnum og ungmennum sem voru í hættu á að fremja ofbeldisglæpi. Að sögn lögreglunnar hafa þessar upplýsingar stuðlað að því að hægt var að stöðva nokkur glæpi í tæka tíð. Johan Olsson segir:

„Við þurfum að viðhalda og auka kraftinn og þær jákvæða hreyfingar að fleiri bregðast við og grípa til aðgerða sem byggja upp sterka keðjuverkun í samfélaginu.“

Fara efst á síðu