Þúsundir mótmælenda fóru út á götur Parísar á laugardag og kröfðust útgöngu Frakklands úr Evrópusambandinu undir merkjum „Frexit.“ Fólkið hrópaði „Frelsi!“ og „Ursula [Von der Leyen], skilaðu peningunum!“ Margir báru franska fána og borða með slagorðum eins og „Nóg af Evrópu“ og „Evrópa verður að næra friðinn, ekki stríðið.“
„Evrópusambandið er hörmung fyrir Evrópulöndin,“ sagði einn mótmælendanna, Francois, og bætti við:
„Evrópulöndin hafa glatað fullveldinu. Núverandi evrópsk samtök eru ekki lýðræðisleg. Þau þröngva hverju sem er upp á aðildarríkin, þar á meðal vókinu.“
Á sama tíma sást Florian Philippot, leiðtogi Les Patriotes, sem hafði boðað til mótmælanna, rífa niður ESB-fánann táknrænan hátt. Hann lýsti fánanum sem „fána skömminnar.“ Mótmælendur fögnuðu með lófaklappi og hrópum. Philippot sagði:
„Hann [Emmanuel Macron, forseti Frakklands] vill fá franska almenningsálitið með sér í stríð, hernám og almenna herkvaðningu. Hann hefur hringt viðvörunarbjöllum, eins og hann orðar það. Hann er brjálaður, svo búast má við að hann gangi alla leið. Þess vegna þurfum við að safna liði eins og mögulegt er, fyrir friði og til að yfirgefa Evrópusambandið.“
Mótmælendur sökuðu Macron einnig um að kynda undir áframhaldandi átök í heiminum, sérstaklega átök Rússa og Úkraínu og bentu á Frexit sem leið til að ná friði. Einn mótmælenda útskýrði:
„Umfram allt er ég að mótmæla fyrir friði. Frexit er möguleg leið, sem er mjög tímabær núna, til að komast nær friði og koma í veg fyrir að Macron bæti olíu á eldinn við núverandi aðstæður.“
Mótmælin koma í kjölfar spennu milli ESB og Bandaríkjanna, sem meðal annars kom til af nýlegum tvíhliða viðræðum milli Rússlands og Bandaríkjanna í Riyadh 17. febrúar. Í kjölfar þessara viðræðna viðurkenndu Bandaríkin að allir aðilar þyrftu að gera tilslakanir í átökunum milli Rússa og Úkraínu og lögðu til að ESB aflétti viðskiptaþvingunum.
Sama dag, nokkrum klukkustundum fyrir viðræður Rússa og Bandaríkjanna, var haldinn neyðarfundur leiðtoga Evrópusambandsríkja og Bretlands í París. Fundurinn fjallaði um framtíð Úkraínu og öryggi allrar álfunnar í ljósi vaxandi óvissu um áhuga Washington á Nató undir stjórn Donald Trump.
Búist er við að Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, og Emmanuel Macron, forseti Frakklands, heimsæki Washington fljótlega. Leiðtogarnir munu að sögn kynna forseta Bandaríkjanna friðaráætlun sem felur í sér að evrópskt friðargæslulið verði sent til Úkraínu ef samið verði um vopnahlé milli Rússa og Úkraínu.
