Hár orkukostnaður sem er að sliga atvinnulíf og heimili í aðildarríkjum ESB og í áframhaldinu í sama mæli á Íslandi er um að kenna kolrangri stefnu í orkumálum. Stjórnmálamenn nútímans hafa tekið upp breytta stefni á grundvelli þeirrar lygi að koltvísýringur skapi hærra hitastig á jörðinni. Það hafa engin vísindi sannað þessa fullyrðingu og enginn vísindi komið með svar við því af hverju þessi 3% sem maðurinn skilar valdi hækkun á hitastigi jarðar og þá hvers vegna hin 97% sem náttúran skilar hafi ekki þegar leitt til logandi loftslags.
Þessi mál voru til umræðu í Swebbtv nýlega og Lars Bern útskýrði að núverandi stjórnmálamenn í aðildarríkjum ESB hafa skapað „heimatilbúinn háan orkukostnað“ sem dregur úr getu fyrirtækja og samkeppnishæfni. Þessi vegna verði að skipta út þessari kynslóð stjórnmálamanna.
Mikael Willgert ræddi við athafnamanninn Lars Bern meðal annars um hnignun Evrópu. Lars Bern útskýrir að það séu stjórnmálamennirnir sjálfir sem hafa hannað þessa dýru orku. Lars segir:
„Að Evrópa er að fara til fjandans hefur líklega ekki mikið að gera til dæmis með samkeppni frá Indlandi. Það hefur að gera með þá staðreynd að stjórnmálamenn okkar hafa tryggt að við höfum heimatilbúinn háan orkukostnað.
Að hluta til forðast fólk ódýrt jarðefnaeldsneyti frá Rússlandi. Að hluta til veldur loftslagsfasismi því að við veljum orkuform sem er miklu dýrara. Og það grefur undan samkeppnisgetu evrópskra fyrirtækja almennt séð. Það gerir allt miklu dýrara en nauðsyn krefur. Og það þýðir að fyrirtækin okkar hafa innbyggðan dragbít á samkeppniseiginleika þeirra.“
Evrópsk fyrirtæki eru, ef svo má að orði komast „hlekkjuð með stein við fótinn“ sem þau þurfa að bera með sér allan tímann. Eða öllu heldur tvo steina: Rússlandsstefnuna og loftslagsstefnuna. Lars bendir á:
„Einhvers staðar mun þetta bresta. Þá kemur kynslóð stjórnmálamanna sem mun endurskoða þessa stefnu.
Það eru til forsendur, ef við losum okkur bara við þessa forystu sem hefur völdin í dag. Ef við losnum við hana, þá munu nýir kraftar með nýjar hugmyndir koma inn. Það er það sem við verðum að binda vonir okkar við.“
Hlýða má á umræðurnar í spilaranum hér að neðan (á sænsku):
