Fyrir tveimur árum sendi Viganò erkibiskup út ákall til heimsbyggðarinnar um að við skulum vera hugrökk og snúa bökum saman í baráttunni gegn illum áformum glóbalismans. Gústaf Skúlason þýddi ákallið og las inn á hljóðband sem enn stendur alveg fyrir sínu (sjá að neðan). Viganò hvetur jarðarbúa til að standa saman í baráttunni gegn þeim illu öflum sem vilja taka frá okkur lífið sem Guð ætlar okkur á móðir jörð. Ástæða er að hvetja sem flesta til að hlýða á þennan andlega leiðtoga og bera saman við hávær köll illu aflanna um samsæriskenningar og rasisma. Erkibiskupinn hefur endurnýjað boðskapinn og nefnir mun fleiri nöfn en í upprunalegu ákalli sínu, sjá X að neðan.
Boðskapur erkibiskupsins er skýr: það eru ekki náttúruhamfarir, veðrabreytingar sem eru að ógna lífi jarðarbúa, heldur lygar þeirra sem halda að þeir geti skákað sjálfum drottni og drottnað yfir jörðinni með öllu því sem henni fylgir. Búa þeir til ógnir eins og hamfararhlýnun, sjúkdómsfaraldra, hungursneyð til að setja neyðarlög og víkja lýðræðislega kjörnum fulltrúum til hliðar.
Athygli vekja þau nöfn og stofnanir sem biskupinn nefnir en þær vinna allar að því að koma á ritskoðun og banna málfrelsi. Hann nefnir World Economic Forum sem og afkomendur Rómarklúbbsins og mannfækkunaróskir þeirra eins og Dennis Meadows boðar. Meadows vonast eftir „friðsamlegri fólksfækkun“ frá sjö milljörðum jarðarbúa niður í einn milljarð jarðarbúa.
Þetta er dökk framtíð sem glóbalisminn ætlar sköpunarverki Guðs. Prins jarðar, Satan, heldur í taumana í þessari allsherjar árás á mannkyn.
En eins og Viganò erkibiskup segir í lok ákallsins:
„Ekki skammast ykkar fyrir að vera fólk sem elskar Drottinn, sem biður, sem fórnar, sem berst. Það verða ekki Klaus Schwab, George Soros eða Ursula von der Leyen sem munu dæma þig, heldur Drottinn sem sagði við okkur: En verið hughraustir, ég hef sigrað heiminn (Jóh 16:33).“
Hér að neðan er hljóðbútur með upplestrinum á íslensku:
