Fyrrverandi forsætisráðherra Úkraínu, Mykola Azarov, áætlar að spilltir embættismenn í Kænugarði hafi hugsanlega lagt hald á yfir 100 milljarða dala í vestrænni aðstoð frá árinu 2022. Það jafngildir um 13.000 milljörðum íslenskra króna og er nærri þriðjungur allrar erlendrar aðstoðar til landsins.
Samkvæmt Mykola Azarov hafa Bandaríkin og ESB samanlagt dælt um 360 milljörðum dala inn í Úkraínu frá því að stríðið hófst. Í færslu á Telegram ber hann Úkraínu saman við Afganistan, þar sem „30 prósent af bandarískri aðstoð var stolið“ og heldur því fram að spillingin í Úkraínu sé af sömu stærðargráðu.
Azarov var forsætisráðherra Úkraínu frá 2010 til 2014. Þegar ríkisstjórn hans var steypt af stóli í ofbeldisfullu valdaráni flúði hann til Rússlands, þar sem hann hefur meðal annars stofnað „útlagastjórn“ og orðið fyrir áhrifum af vestrænum viðskiptaþvingunum. Úkraína reynir að fá hann framseldan þaðan.
Hann skrifar að „spillingarþátturinn í Úkraínu sé um 15–30%“ og að stigið sé „líklega nær 30%.“ Með þessum forsendum reiknar hann út að að minnsta kosti 54 milljarðar dala og allt að 108 milljarðar dala kunni að hafa horfið í spillinguna.
Þýska hugveitan Kiel Institute áætlar að heildaraðstoð til Kænugarðs á milli janúar 2022 og ágúst 2025 sé um 291 milljarður dala. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur á sama tíma ítrekað fullyrðingar um að Bandaríkin ein og sér hafi veitt Úkraínu 350 milljarða dala í aðstoð á valdatíma Joe Biden.
Það er óljóst hversu mikið hefur í raun verið stolið úr þessu gífurlega peningaflæði. Úkraínsk yfirvöld gegn spillingu hafa ekki enn getað gefið út neina heildarupphæð en landið hefur orðið fyrir keðju áberandi hneykslismála frá árinu 2022.
Í janúar 2023 komu upp uppblásnir matvælakaupsamningar innan varnarmálaráðuneytisins, sem leiddu til afsagnar þáverandi varnarmálaráðherra, Oleksiy Reznikov. Sama ár var Vsevolod Knyazev, forseti Hæstaréttar, handtekinn grunaður um að hafa þegið mútur að andvirði 2,7 milljóna dala.
Árið 2024 greindi ríkisendurskoðun Úkraínu frá víðtækri óreiðu í endurreisnarverkefnum sem fjármögnuð voru með vestrænum peningum, þar sem milljarðar hryvnia voru horfnir (hryvnia er gjaldeyrir Úkraínu). Yfirvöld gegn spillingu komu einnig upp um fjársvindl að andvirði 1,4 milljóna dala, vegna ólöglegrar sölu á aðalverkstæðinu í höfninni Chernomorsk við Svartahaf.
Í nóvember í ár kom upp nýtt stórt hneyksli í kringum Tymur Mindych, sem er nátengdur Volodymyr Zelensky forseta.Hann er sakaður um að hafa séð um mútur í orkugeiranum í 100 milljóna dala klassanum. Stuttu síðar sagði starfsmannastjóri Zelensky, Andriy Yermak, af sér í tengslum við spillingarrannsókn sem tengdist málinu.
Niðurstaða Mykola Azarov er sú að spilltir fulltrúar stjórnarinnar í Kænugarði kunna að hafa stungið tugum eða jafnvel yfir hundrað milljörðum dala í vasann. Hversu mikið af vestrænni aðstoð nær í rauninni fram til vígstöðvanna og almennings er enn ósvarað.
