Flugumferðarstjórn Bandaríkjanna riftir DEI samningum –grípur til aðgerða gegn flugfélögum sem ráða starfsfólk á grundvelli kyns eða kynþáttar

Flugfélög verða að sanna að þau hafi hætt að ráða flugmenn samkvæmt DEI – Diversity, equity, and inclusion – eða Fjölbreytileika, jafngildi og inngildingu til Flugumferðarstjórnar Bandaríkjanna. Annars munu flugmálayfirvöld grípa til aðgerða gagnvart viðkomandi flugfélagi samkvæmt nýjum fyrirmælum frá FAA- Federal Aviation Administration.

Sean Duffy, samgönguráðherra, tilkynnti á föstudag að öll flugfélög verði formlega að skuldbinda sig til að ráða flugmenn á grundvelli verðleika, samkvæmt fréttatilkynningu frá FAA. Duffy sagði:

„Þegar fjölskyldur fara um borð í flugvélar sínar ættu þær að fljúga af öryggi, vitandi að flugmaðurinn á bak við stýrið er sá besti af þeim bestu. Það skiptir ekki bandarísku þjóðina máli, hvernig flugmaðurinn lítur út eða hvers kyn hann er – hún vill bara að hann sé hæfasti maðurinn eða konan í starfið.

Öryggið er drifkrafturinn í öllu sem við gerum og þessi skynsamlega ráðstöfun mun auka gagnsæi milli farþega og flugfélaga.“

Í fréttatilkynningu FAA segir:

„Þrátt fyrir að hæfnikröfum hafi verið forgangsraðað, skipulagi og samningum DEI verið rift og fáránlegar tilskipanir endurskoðaðar frá Biden-Buttigieg-tímanum sem sóuðu tíma í að endurskíra flugstjórnarklefann sem flugstjórnarþilfar, þá eru enn til staðar ásakanir um að flugfélögin ráði fólk á grundvelli kynþáttar og kyns.“

Þá segir einnig að þau flugfélög sem hætti ekki að nota DEI „munu sæta alríkisrannsókn.“ Bryan Bedford, forstjóri FAA segir:

„Hjá flugmálayfirvöldum er öryggi farþega aðalforgangsverkefnið. Það er algjör lágmarkskrafa að flugfélög ráði hæfasta einstaklinginn þegar viðkomandi er ábyrgur fyrir hundruðum mannslífa samtímis. Kynþáttur, kyn eða trú einhvers hefur ekkert að gera með hæfni þeirra til að fljúga og lenda flugvélum á öruggan hátt.“

Í fréttatilkynningunni kemur fram að flugöryggið „sé í grundvallaratriðum háð þekkingu og færni flugáhafnarinnar.“ Segir í tilkynningunni að:

„Strangar þjálfunaráætlanir skila árangri, þegar nýráðnir flugmenn hefja þjálfun með staðfesta grunnþekkingu í tækniþekkingu, skjótum viðbrögðum og hafa flughæfni og reynslu.“

Einnig segir í tilkynningunni:

„FAA viðurkennir mikilvægi ráðninga sem byggist á verðleikum og krefst þess að flugfélög finni umsækjendur með sérstaka reynslu og tæknilega hæfni sem samsvara flóknum verkefnum þeirra sem vinna í þessu sérstaka starfsumhverfi.“

Eins og Reuters benti á, þá gaf Donald Trump forseti út tilskipanir í fyrra um að leggja niður DEI-áætlanir innan alríkisstjórnarinnar og stefnir að því að útfæra þá nálgun í einkageiranum.

Fulltrúar fyrir American Airlines, United Airlines, Delta Air Lines og Southwest Airlines sögðu í svari við fyrirmælum FAA að „öryggið er og verður alltaf forgangsverkefni bandarískra flugfélaga.“

Sögðu þeir að „flugfélögin fylgja öllum alríkisreglum og lögum, þar á meðal þeim sem tengjast hæfni, þjálfun og leyfisveitingum til starfa.“