Steve Bannon frá War Room ræddi við Jan Jekielek, höfund bókarinnar Drepinn samkvæmt pöntun „Killed to Order“ um líffæraiðnað kínverska kommúnistaflokksins. Jekielek útskýrði að kínverski kommúnistaflokkurinn hefði fangelsað marga sem voru á móti flokknum og búið til gagnagrunn fanga sem notaður er við sölu á líffærum fanganna. Hann útskýrði að hentugur fangi er drepinn þegar líffærapöntun berst og síðan eru líffærin skorin út og send til kaupandans.
Bannon: „Þú ert að tala um gjörsamlega rotið kerfi. Gleymum tækni þeirra. Hugsum um hvað þeir gera á hverjum einasta degi. Bókin þín „Kill to Order“ fyllir mann óhug…. Segðu mér frá kínverska kommúnistaflokknum – æðsta þrepinu.“
Jekielek: „Þeir eru að gera eitthvað ógeðslega hrottalegt. Við erum að horfa á kerfi þar sem fólk er fangelsað í stórum stíl. Samviskufangar. Einhver mjög vondur maður fann út að það væri hægt að skanna blóðflokka, vefjaflokka og líffæri fólks sem er í fangelsum og búa til gagnagrunn.
Það er óljóst hversu margir fóru í þetta fangelsiskerfi kínverska kommúnistaflokksins sem þeir auglýsa núna. Árið 2006 var byrjað að auglýsa þetta og þessar auglýsingar voru neðanjarðar. Ef einhver svaraði sem gat borgað mjög háa upphæð, þá var fundinn fangi með réttan vefja- og blóðflokk. Samkvæmt pöntun myndu þeir þá drepa fangann og senda líffærin til viðtakandans.

Þeir sögðu í grundvallaratriðum, að fyrir hátt verð, segjum 200 þúsund (dollara), þá gætir þú fengið nýtt hjarta á tveimur vikum, vegna þess að sá einstaklingur sem yrði svo kallaður gjafi þinn, var á lífi tilbúinn til að vera myrtur samkvæmt pöntun í gagnagrunninum. Líffærin voru síðan tekin úr honum og send til kaupandans.
Þetta er hræðilegt fyrirbæri. Þetta er eitthvað svo langt fjarri því sem hægt er að hugsa sér og líka þær hræðilegu líffæraígræðslur sem við sjáum á svarta markaðinum. Og það er ríkið sem er að framkvæma þetta.“
Bannon: „Förum aðeins saman í gegnum þetta. Þetta er starfsemi á vegum ríkisins sem tekur pólitíska fanga og einnig til að græða peninga á þeim. Er það það sem þeir eru að gera?“
Jekielek: „Þú hittir naglann á höfuðið. Það er til doktorsritgerð eftir einn af hetjurannsakendum þessa máls. Hann heitir Matthew Robertson. Hann gaf starfseminni nafn. Hann er með heilan kafla um málið í nýlegri doktorsritgerð sinni. Hann kallar þetta útdráttarkúgun. Þannig að þú nærð tveimur hlutum í einu.
Kommúnistaflokkur Kína bætti Úígúrum við fangahópinn og tekur líffæri þeirra líka. Enginn gerði neitt í málinu í 14 eða 15 ár, árið 2015 bættu þeir Úígúrum við. Þeir afmennskuðu þá, þeir bættu við milljón föngum í kerfið og fóru að nota þá líka.
Þetta snýst um að losna við íbúa sem maður hefur engan áhuga á eða ögra stjórninni.
Gróft reiknað veltir líffæraiðnaðurinn um níu milljörðum dollara.“
