Í fyrsta skipti í yfir 60 ár hefjast aftur æfingar með fjöldaflutningi óbreyttra borgara í Svíþjóð. Í haust verður fyrsta æfingin á Gotlandi sem á að tryggja að sænsk yfirvöld geti tekist á við aðstæður þar sem flytja þarf stóran hluta íbúanna á brott í neyðartilvikum eða stríði.
Á haustæfingunni á Gotlandi munu allt að 300 sjálfboðaliðar starfa sem verða fluttir á brott með rútum lénsstjórnarinnar eins og gera á, þegar stríðið kemur.
Enn þá stærri æfing er fyrirhuguð í Norður-Svíþjóð árið 2027, þar sem fleiri óbreyttir borgarar verða með ásamt stærri búnaði. Markmiðið er að veita yfirvöldum hagnýta reynslu af flutningum, samskiptum og samhæfingu þegar grípa þarf til stórfelldra flutninga íbúanna.
Litið til sögunnar, þá voru nokkrar æfingar í fjöldaflutningum haldnar á sjötta og sjöunda áratugnum. Sú stærsta fór fram í Stokkhólmi árið 1961 og safnaði saman 30.000 þátttakendum. Þetta var einnig í síðasta skiptið sem Svíþjóð prófaði viðbúnað á þessu stigi.
Merki sent til umheimsins
Með endurupptöku æfinganna vilja sænsk stjórnvöld bæði efla innlendan viðbúnað og senda „merki um styrk og getu til umheimsins.“
Alf Söderman, varnarmálastjóri hjá Lénsstjórn Gotlands léns, segir í viðtali við ríkisútvarpið:
„Þetta sendir sendir út það merki til umheimsins að við getum tekist á við verkefnið.“
