Leiðtogi sænskra sósíaldemókrata, Magdalena Andersson, gagnrýnir kjarnorkuviðræður sænsku ríkisstjórnarinnar við Frakkland. Í viðtali segir TV4 segir hún að Svíþjóð hefði ekki átt að taka þátt í viðræðunum – þar sem Evrópa hefur nú þegar nægilega mikið af kjarnorkuvopnum til að „við getum sprengt Rússland í tætlur.“
Ríkisstjórn Svíþjóðar hefur hafið viðræður við Frakkland um mögulegt evrópskt kjarnorkuhlífðarkerfi nokkurra NATO-ríkja. Viðræðurnar ná meðal annars til Svíþjóðar, Þýskalands, Danmerkur og Póllands.
Leiðtogi systurflokks Kristrúnar Frostadóttur Samfylkingarinnar á Íslandi, Magdalena Andersson, formaður sænskra sósíaldemókrata, er tortryggin gagnvart frumkvæðinu.
Samkvæmt henni er þegar til staðar kjarnorkufæling í Evrópu í gegnum Frakkland og Bretland. Magdalena Andersson segir við TV4:
„Við höfum jú kjarnorkuvopn í Evrópu þannig að það er skýr fælingarmáttur gagnvart Rússlandi. Þannig er það. Evrópa hefur kjarnorkuvopn í dag, þannig að við getum sprengt Rússland í tætlur.
En það er raunverulega til umræðu líka – ef Frakkar vilja koma kjarnorkuvopnum sínum í hendur annarra landa, hvers vegna það gerist þá ekki innan ramma NATO.“
Sænska ríkisstjórnin gagnrýnir ummæli krataforingjans, þannig skrifar utanríkisráðherrann Maria Malmer Stenergard á X:
„Það verður að vera hægt að treysta á Svíþjóð í öryggismálum og að við séum reiðubúin að láta gjörðir fylgja orðum. Magdalena Andersson er tilbúin að setja sænskt öryggi í hættu fyrir ríkisstjórnarvaldið.“
Samkvæmt upplýsingum sænska sjónvarpsins eiga ríkisstjórnin og Sósíaldemókratar áður að hafa haft óformlegt samkomulag um að forðast opinn ágreining varðandi kjarnorkuvopn en eftir ummæli Andersson er talið að það samkomulag sé nú rofið.
