Ursula von der Leyen með forsætisráðherra Indlands Narendra Modi við undirskrifts samnings ESB og Indlands.
ESB hefur tekið stórt skref til að fjölga innflytjendum frá Indlandi með nýjum viðskiptasamningi aðilanna. Samtímis og ESB og Indland skrifuðu undir samninginn, þá var samkomulag gert um löglegar leiðir fyrir Indverja í atvinnuleit að koma til aðildarríkja Evrópusambandsins.
Ákvörðunin var tilkynnt í Nýju Delí á þriðjudag, þar sem Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, tók þátt í viðskiptaþingi milli ESB og Indlands. Hún lýsti samkomulaginu sem byltingarkenndu í samskiptum aðila.
„Þetta er sögulegur dagur í samskiptum ESB og Indlands.“
Samkvæmt ESB þýðir fríverslunarsamningurinn að tvö af stærstu hagkerfi heims standa nær hvort öðru. Ursula von der Leyen leggur áherslu á að samningurinn muni veita skýrar reglur, stöðugan aðgang að mörkuðum og langtímaöryggi fyrir fjárfestingar:
„Saman eru Evrópa og Indland að skapa eitt stærsta viðskiptasvæði heims.“
Auk viðskipta felur samningurinn í sér nýjan samstarfsramma fyrir fólksflutninga og hreyfanleika, að því er Remix News greina frá. Hann mun auðvelda indversku fagfólki, nemendum, vísindamönnum og verkamönnum að komast til ESB í störfin þar. Von der Leyen segir:
„Við erum staðráðin í að tryggja örugga, reglulega og skipulega fólksflutninga.“
Sem hluta af verkefninu mun ESB opna fyrstu evrópsku lagalegu gáttina, sem er hönnuð sem aðgangur fyrir Indverja í atvinnuleit og byrjað verður á sviði upplýsingatækninnar. Aðilar ætla einnig efla samstarf varðandi menntun, hæfileikaþróun og viðurkenningu prófa.
Gengið var formlega frá samningunum í tengslum við ríkisheimsókn von der Leyen og Antonio Costa, forseta Evrópuráðsins, þar sem þau tóku meðal annars þátt í hátíðahöldum á þjóðhátíðardegi Indlands. Mörg aðildarríki ESB, þar á meðal Svíþjóð, hafa þegar séð mikla aukningu innflytjenda frá Indlandi á undanförnum árum.
