ESB hefur bein afskipti af komandi þingkosningum í Ungverjalandi

Ungverska hugveitan MCC Brussels hefur stofnað nýja rannsóknarmiðstöð um afskipti ESB af lýðræðislegum kosningum í aðildarríkjunum. @DIOObservatory – Democracy Interference ObservatoryDIO er ætlað að afhjúpa, skrásetja og greina hvernig Evrópusambandið og aðilar tengdir ESB hafa áhrif á þjóðarkosningar um alla Evrópu. MCC Brussels vinnur ásamt öðrum samtökum sem vinna að verndun tjáningarfrelsis að þessu verkefni. DIO mun fylgjast með fjórum lykilþáttum: upplýsingaumhverfinu og stafrænum stjórnunartækjum ESB; fjármögnun tengdum ESB; stofnanalegum þrýstingi og skilyrðum, og sögum sem dreift er til að réttlæta sérstakar mótvægisaðgerðir.

Hafin er markviss rannsókn á ungversku þingkosningunum sem áætlaðar eru þann 12. apríl 2026. Skýrsla MCC um „lýðræðisskjöld ESB (sjá pdf að neðan) fjallar um varnarmúr framkvæmdastjórnarinnar gegn lýðræðislega kjörnum fulltrúum aðildarríkjanna.

Afskipti ESB í rúmensku kosningunum 2024/25

MCC Brussel hefur sótt um aðgang að skjölum framkvæmdastjórnar ESB sem innihalda upplýsingar um útfærslu stafrænna þjónustulaga ESB varðandi forsetakosningarnar í Rúmeníu. Framkvæmdastjórnin hefur neitað aðgangi að þessum mikilvægu skjölum og skýrir neitunina með því að lög um stafræna þjónustu DSA séu æðri reglugerð ESB um gagnsæi. Þá ákvörðun staðfesti umboðsmaður ESB þann 19. desember 2025.

Nýlegar upplýsingar frá dómsmálanefnd bandarísku fulltrúadeildarinnar, sem byggja á innri skjölum frá helstu stafrænum kerfum, sýna fram á mikla samvinnu milli stjórnvalda, tæknifyrirtækja og utanaðkomandi stofnana til að hafa eftirlit með og stjórna pólitískri umræðu á netinu. Þessar upplýsingar sanna að víðtæk stofnanabundin stjórnun efnis sem hefur áhrif á lýðræðislega umræðu er nú þegar í notkun. Skjöl bandarísku fulltrúadeildarinnar eru í samræmi við rannsóknir MCC Brussel á notkun DSA laganna í forsetakosningunum í Rúmeníu.

ESB fjármagnar félagasamtök fyrir ungversku kosningarnar

ESB fjármagnar aðgerðarsinnuð félagasamtök sem gegna lykilhlutverki í að miðla efni, mati og tillögum sem síðan eru teknar inn í skýrslur ESB um réttarríki og lýðræðiseftirlit. MCC Brussel hefur nýlega uppljóstrað um tilraunir Democracy Reporting International (DRI) til að komast yfir gögn um kosningakerfið í Ungverjalandi. Samtökin fá 74% af fjármögnun sinni frá ríkisstjórnum: 47% frá þýska utanríkisráðuneytinu, 20% frá ESB og 7% frá hollenska utanríkisráðuneytinu.

Stjórnmálaþróunin í Mið- og Austur-Evrópu sýnir að auðþekkjanlegt mynstur frá Rúmeníu er núna notað í Ungverjalandi. Leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Ungverjalandi, Péter Magyar, varar við rússneskum afskiptum af kosningunum og kallar eftir sterkum viðbrögðum ESB. Jafnframt heldur stjórnarandstaðan því opinberlega fram að lögum ESB um stafræna þjónustu og gervigreind verði beitt í Ungverjalandi til að sporna gegn „rangfærslum“ á netinu.

Í ljósi skýrra sönnunargagna um stefnu framkvæmdastjórnar ESB sem fjármagnar félagasamtök og innlenda eftirlitsaðila mun DIO innan skamms gefa út ítarlega skýrslu um „afskiptaleiðbeiningar“ ESB sem byggir á gögnum frá síðustu kosningum til ESB-þingsins og skjalfestum málum. Framkvæmdastjóri MCC Brussels, Furedibyte segir að hlutverk rannsóknarmiðstöðvarinnar sé að gera þessar aðferðir ESB sýnilegar:

„Kjósendur eiga að ráða kosningaúrslitum – ekki reglugerðarþrýstingur að tjaldabaki, fjármagn og stjórnun upplýsinga. Gagnsæi og málfrelsi er sterkasta öryggið fyrir lýðræðislega kjörin stjórnvöld.“