Þórdís Reykfjörð fv. utanríkisráðherra (skjáskot RÚV).
Hvenær hefur það áður gerst í Íslandssögunni að stjórnmálamenn koma fram á sjónarsviðið og setji kröfur um skilyrði áframhaldandi stríðs í Evrópu og skilyrðislausrar uppgjafar annars aðilans, í þessu tilfelli Rússlands? Rétt eins og að orð þessara merkilegu Íslendinga þýddu eitthvað fyrir stríðandi aðila. Þegar vopnin tala er það sá sem vinnur sem ræður. Fábjánarnir á Íslandi fara í sögubækurnar fyrir fávitaskapinn að halda að Ísland ráði úrslitum og að Rússar dragi sig til baka frá teknu svæðunum. Valkyrjurnar telja hverja aðra vera dýrlinga og krefjast þess að þjóðin geri það líka. Eru stórhneykslaðar eins og frú Reykfjörð að í Hvíta húsinu reyni menn að finna lausn á stærsta stríði Evrópu eftir seinni heimsstyrjöldina.
Íslendingar á ESB sterum, eru bókstafstrúar. Þeir líma sig við bókstafinn: Enginn má taka landsvæði með ofbeldi. Þar af verður enginn friður fyrr en Rússar yfirgefa austurhluta Úkraínu sem í dag er hluti af Rússlandi. Þetta sjónarmið leiðir til þess að óvíst er hvort frægð þeirra komist nokkurn tímann í sögubækurnar, þar sem hættan er að allt verði að geislavirku skýi og útgáfan hætti endanlega. Það eina sem er öruggt er að það verður heimsstyrjöld, sú þriðja og líklega sú síðasta. Kjarnorkuvopnum verður beitt. Stefna ESB, Bretlands, Þýskalands og Frakklands er að steypa álfunni og heiminum öllum út í fullkomlega tilgangslaust blóðbað þar sem engin veit hver útkoman verður fyrir mannkyn. Það eina sem er gefið fyrir fram er að milljörðum mannslífa verður slátrað fyrir bókstafinn.
Þessi afstaða er sú sama og Karl Marx og Engels höfðu og kostað hefur mannkyn hundruðum milljóna mannslífa. Bókstafstrú í staðinn fyrir raunverulega aðkomu. Þó að það sé fræðilega rétt að ríki eigi ekki að stækka landamærin með ofbeldi á nágrönnum sínum, þá er ekki eins og enginn aðdragandi hafi verið að því til dæmis kalda stríðið, sameining Þýskalands, útþenslustefna Nató, valdarán í Kænugarði 2014 og innanlandsátök í kjölfarið. Lái Rússum það hver sem er að þeir vilja ekki hafa Nató í heimatúninu. Það hafa þeir sagt í áratugi en enginn hlustað á Vesturlöndum. Þjóðarmorð á Rússum í Úkraínu fylgdi heldur ekki bókstafnum.
Þegar Rússar og Úkraínumenn skiptast á líkum fallinna hermanna er hlutfallið einn á móti þrjátíu. Einn rússneskur hermaður fyrir þrjátíu úkraínska. Talað er um að yfir hálf milljón úkraínskra hermanna hafa týnt lífinu í stríðinu. Fyrir hvað má spyrja. Liðhlaup er í hæstu hæðum. Þjóðin tvístruð og löskuð eftir átökin.
Ofstæki ESB, leiðtoga hinna viljugu, NB8 sem inniheldur íslensku stjórnmálaelítuna, má líkja við ofstæki Hitlers og nazismans gagnvart Rússlandi í seinni heimsstyrjöldinni. Pútín er djöfullinn, Rússum er bolað út í horn og venjulegt fólk verður að leggja á sig langar krókaleiðir til að geta heimsótt ættingja erlendis eða að þeir komist til Rússlands. Nágranni minn er rússnesk kona sem þarf að fljúga frá Stokkhólmi til Tyrklands og þaðan til Moskvu til að heimsækja ættingjana. Rússar eru gyðingar nútímans segir hún. Ástandið minnir óheyrilega á fyrri tíma í Evrópu. Enginn ræðir við Rússa, rússneskir fjölmiðlar eru ritskoðaðir innan ESB og allir eiga að taka virkan þátt í Rússahatrinu. Með sama áframhaldi líður ekki á löngu þar til farið verður að segja að Rússar séu réttdræpir hvar sem er nákvæmlega eins og Gyðingar, því allt illt er þeim að kenna.
ESB gefur mýflugum þá tilfinningu að þær séu fílar sem geti flogið um allt á eyrunum. Hið íslenska SS-lið, SjálfstæðisSvikararnir, blaka eyrunum hver framan í annan og láta eins og fjöregg heimsins séu í þeirra höndum. Enn sem komið er greiða skattgreiðendur með peningum. Í framhaldinu reiknast verðið í líkum. Einnig íslenskum. Þetta fólk er mikil smán fyrir land og þjóð. Fylgja í engu þeim hefðbundna sið að Íslendingar séu sér meðvitaðir um smæð eigin þjóðar og herleysi. Þáttakendur í nýlenduvæðingu landsins okkar góða.
Valkyrjurnar draga vagninn fram af hengibrúninni – Hvað reiknast hégómi þeirra í mörgum líkum?
