Vængjaðir Reykvíkingar leysa umferðavandann

Winged man flying

Nú eru bæði Íris og Gústaf komin til baka í heiðardalinn, annar í Minnesota, hinn í Stokkhólmi. Íris þurfti að sækja barnabarnið sitt og lýsir umferðinni í Reykjavík á óskemmtilegan hátt. Það er mikið tap fyrir samfélagið að þvinga fólk til að eyða svo miklum tíma í að sitja í bíl í bílaröðum í borginni og komast ekkert áfram. Sá tími flokkast varla undir gæðatíma hjá landanum.

Húsum hefur verið hrúgað niður í þéttingaræði borgarvitringa í Reykjavík eiginlega án nokkurs heildarskipulags með fækkandi bílastæðum. En á þeim tíma hefur bílaeign landsmanna farið stækkandi og ekki íhugað að vegakerfi fyrir slíkt.

„Það eru sömu gatnamótin á horni Grensásvegar og Ármúla og þegar ég fermdist” segir Íris.

Stjórnmálamenn og blýantsnagarar bæjarins flækjast hver fyrir öðrum með sístækkandi kostnaði fyrir borgarbúa. Núna þegar búið er að sprengja gatnakerfið er bara einn guð í bænum: Borgarlínan. Og menn sitja og bíða og biðja í bílum sínum fastir í umferðinni og óska sér að þeir hefðu vængi til að losna við hið gáfulega skipulag sem möppudýr og kerfiskrabbar eru svo sólgin í og troða upp á almenning.

Íris Erlingsdóttir segir fólk vera svo upptekið að eiginlega fari einu samskiptin og orðræðan í gegnum netið. Að fólk hittist til að ræða málin samkvæmt gamalli reyndri reglu Hávamála „maður er manns gaman” tilheyrir liðinni tíð. Stress, stress og enn þá meira stress gerir fólk pirrað og einangrað.

Kynjavæðingin fær sinn skammt í þessum þætti eins og venjulega. Femínistarnir hafa með göldrum sett samfélagið í álög kynjaþrálætis, þar sem ekki er lengur hægt að líta til sólar og ræða veðrið án þess að spurningin um hvaða kynfæri ráði ferðinni. Ef það er kona, þá er allt í lagi. Sé það karl, þá þarf að umbylta öllu.

Ísland er heltekið vók menningu sem saumar saman augnlok og eyru fólks. Það eina sem fólk fær í æð er sharía jafnaðarmanna og heilagi söngurinn um paradísina í Brussel. Eitthvað babb kom þó í bátinn á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Brasilíu, því þegar íslenski orkumálaráðherrann hóf máls, þá kviknaði í ráðstefnunni. Hann náði samt að láta mynda sig með fararstjóra hraðbrautarinnar til helvítis Guterres, og vonandi geta báðir skælbrosað framan í heiminn, þegar náttúran lækkar sjálf hitastigið á loftslagsráðstefnum Sameinuðu þjóðanna í framtíðinni.

Heyr mína bæn er að verða síðasta tangarhald landsmanna…..

Fara efst á síðu