Það skiptir engu máli, hvað sagt er í orði um lýðræðið, ESB er að mynda net njósnamiðstöðva í aðildarríkjunum til að kæra hatur og gagnrýnar skoðanir á ESB á samfélagsmiðlum til netrisanna sem ritskoða viðkomandi. Skoðanakúgunin er sótt í smiðju kínverskra kommúnista sem nota slíkt kerfi í Kína í dag til að skapa ótta meðal almennings og gera hann meðfærilegri í höndum alræðisflokks ríkisins. Njósnakerfinu er komið á í nafni baráttu gegn barnaníði sem allir eru sammála um en verður í höndum ESB að ritskoðunarverkfæri á „hatursumræðu“ og skoðunum sem ganga gegn viðurteknum skoðunum Framkvæmdastjórnarinnar.
ESB er núna að byggja upp net svokallaðra „traustra uppljóstrara“ samkvæmt DSA-lögunum (Digital Service Act) – sem miða að því að harðritskoða Internetið fyrir notendur innan ESB og trúlega einnig EES svæðisins. Þetta þýðir að sérstakir aðilar fá styrk frá netrisunum til að tilkynna „hatursáróður eða rangfærslur“ í stórum stíl og má búast við á Íslandi að haturslögin verði notuð og þá munu til dæmis Samtökin 78 geta haft tekjur af því að verða slíkur „traustur uppljóstrari.“
Aðildarríki ESB hafa tíma á sér til áramóta til að tilnefna „trausta uppljóstrara“ til að styrkja „öryggi á Internetinu“ samkvæmt DSA-ritskoðunarlögunum.
Að sögn TKP er aðallega um svo kölluð frjáls félagasamtök að ræða, ríkisstyrkt vinstri sinnuð samtök. Sum lönd eru komin langt á veg. Þýskaland og Austurríki byrjuðu að skipa slíka aðila fyrir nokkrum mánuðum á meðan önnur ríki keppast við að skipa slíka njósnaaðila í sínum löndum.
Belgía hefur nýlega skipað „miðstöð gegn mismunun“ sem uppljóstrara. Í Frakklandi hefur fjölmiðla- og eftirlitsstofnunin Arcom þegar samþykkt átta slík samtök fyrir september og búist er við að hún muni skipa fleiri, þar sem vinstri öfgasamtökin SOS Racism eru nefnd sem líklegur nýr „traustur uppljóstrari.“
Í Austurríki hefur fjölmiðla- og samskiptastofnunin KommAustria hingað til samþykkt fimm aðila. Í Þýskalandi má meðal annars sjá vinstri sinnuðu öfgasamtökin Meldestelle Respect og HateAid á listanum.
Samkvæmt DSA-lögunum verða samfélagsmiðlar að forgangsraða tilkynningum frá vinstri sinnuðum öfgasamtökum um „upplýsingaóreiðu og hatur“ á netinu.
Í Svíþjóð hafa tvær stofnanir sem ekki eru svo pólitískar verið skipaðar sem uppljóstrarar fram að þessu: Sænsku varnarsamtökin gegn þjófnaði (Svenska Stöldskyddsföreningen) og Ecpat sem vinnur gegn kynferðislegri misnotkun barna.
Vaxandi ritskoðunarnet ESB hefur þegar skilað góðum árangri. Á einungis einum ársfjórðungi var samtals 29 milljónum færslum eytt innan ESB, skrifar TKP.
Listi yfir stofnanir sem hingað til hafa verið tilnefndar sem traustir uppljóstrarar er að finna á vefsíðu framkvæmdastjórnar ESB og einnig á pdf hér að neðan:
