Aldrei talað um þann fjölda araba sem koma til landsins

Sigfús Aðalsteinsson, baráttumaður Þvert á flokka, skrifar um innflytjendamálin á Facebook og bendir á að hundruður séu innfluttir í nafni “fjölskyldusameinnngar.” Þetta er nákvæmlega sama munstur og er til dæmis í Svíþjóð.

Ástæðan fyrir orðum Sigfúsar er blaðamannafundur Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra, þar sem hún upplýsti um að Íslendingum hefði fjölgað um 57 þúsund íbúa á árunum 2017 – 2025. Samsvarar það 17% aukningu sem er rúmlega þrettán sinnum meiri en í Evrópu að meðaltali og fjórum sinnum meiri en á öðrum Norðurlöndum. Fjölgun erlendra ríkisborgara er 69% af fólksfjölgun tímabilsins eða 39.330 manns! Ekki að undra að Sigfús varaði við þessari þróun og segir Íslendinga verða minnihlutahóp í eigin landi eftir 10-15 ár!

Sigfús Aðalsteinsson skrifar:

Það eru 10.000 hælisleitendur hér á landi en ekki mikið annað vitað um þann hóp segja stjórnvöld. Dómsmálaráðherra segir að við verðum að taka utanum allt þetta fólk, líka þessa 69.000 innflytjendur sem hingað hafa streymt, þrátt fyrir að hér sé engin stefna nema sú að hleypa öllum inn.

Alltaf skal bent á Úkraínu, aldrei talað um þann fjölda araba sem hingað hafa komið í allsnægtir kerfisins.

Það er einhvern veginn allt öðrum að kenna, sem er líklega partur af vandamálinu en nú er að skríða í ár þessarar stjórnar og ætti margt að vera orðið breytt. En eðlilega er það ekki þegar hægri veit ekki hvað sú vinstri gerir!

Þorbjörg segist vera í endurskoðun á þessu eða hinu en Þorgerður hendir peningum í allar áttir milli þess sem hún grætur af gleði yfir innflutningi hundruða í nafni “fjölskyldusameinnngar” og ekki síður er fjölskyldusameiningar séu nú í vexti!!

Ég er þreyttur á engu!

Fara efst á síðu