Ég er ríkið, mátturinn og dýrðin að eilífu Viðreisn!

Þorgerður Katrín í hópi skoðanabræðra.

Mikil er dýrð Viðreisnarmanna sem telja sig vera ríkið með 15,8% útkomu í síðustu kosningum. Konan sem opnaði Gullnahlið peningahimnaríkis í fjármálahruninu 2008 og mokaði illa fengnu fé í kippum þar inn, speglar sig núna í rúv og segir:

„Ég er ríkið og ríkið er það eina sem þarf!”

Þessi orð hafa heyrst áður meðal annars hjá Lúðvík 14. Frakklandskonungi á 17. öld. Síðar tóku Mússolíni og Hitler upp þráðinn. Mússolíni leiddi þjóðlega fasistaflokkinn á Ítalíu og Hitler þýska nazistaflokkinn. Boðskapur fasistanna var:

„Ríkið er allt, ekkert án ríkisins, ekkert gegn ríkinu.”

Boðskapur Hitlers var:

„Ein þjóð, Eitt ríki, Einn leiðtogi!”

Þorgerður er hégómagjarnari en bæði Hitler og Mússólíni og gengur skrefi lengur en Mússolíni. Þorgerður Katrín vill verða Sólardrottning í stíl Sólarkonungsins Lúðvíks 14. sem valdi sólina sem tákn sitt og sá fyrir sér að hann væri miðpunktur ríkisins og sagði eins og Þorgerður í Silfrinu:

„ÉG ER RÍKIД